151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

lög um fjárfestingar erlendra aðila.

[13:27]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Þetta svar hæstv. ráðherra er náttúrlega alveg með ólíkindum. Hefur hæstv. ráðherra enga skoðun á því að þetta mál sé þjóðaröryggismál? Þá hlýtur hæstv. ráðherra að hafa skoðun á því hvort ekki sé nauðsynlegt að endurskoða lögin þó svo að þau heyri ekki beint undir ráðherra. Ég verð að segja það, herra forseti, að þetta svar kemur mér algjörlega í opna skjöldu, ég verð bara að segja alveg eins og er. Kannski er það vísbending um að þessi mál séu bara alls ekki í nógu góðu lagi hjá okkur. Við höfum fengið fréttir af því og sáum það t.d. í mars að erlendur framtakssjóður keypti meiri hluta hlutafjár í stóru fyrirtæki á Íslandi sem safnar upplýsingum um Íslendinga og fyrirtækið safnar gríðarlega miklum upplýsingum. Við sjáum að erlendir aðilar eru að safna hér upplýsingum og það hlýtur að vera þjóðaröryggismál. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra, fyrst hún svaraði algjörlega út í hött í fyrra andsvari: (Forseti hringir.) Hver er skoðun hæstv. ráðherra á því að fyrirtæki sem safna upplýsingum um Íslendinga séu að fullu í eigu erlendra aðila? (Forseti hringir.) Heyrir það kannski heldur ekki undir verksvið ráðherra (Forseti hringir.) að svara þeirri fyrirspurn?