upptaka litakóðunarkerfis.
Forseti. Nú þegar fjórða bylgja faraldursins virðist vera að skella á okkur hérna innan lands eru aðeins 11 dagar þar til liðkað verður fyrir komu ferðamanna til landsins með litakóðunarkerfi ríkisstjórnarinnar, sem sett er fram í óþökk sóttvarnayfirvalda. Það mun að óbreyttu taka gildi 1. maí. Þá munu ferðamenn frá svokölluðum grænum löndum, já og appelsínugulum líka, sleppa við sóttkví á landamærum. Ef þeir skila PCR-vottorði á brottfararstað fara þeir í eina skimun við komu til landsins en sleppa við sóttkvína. Forsætisráðherra hefur áður sagt að þetta kerfi taki mið af stöðu faraldursins hverju sinni, sem er gott. Áhættan af ferðamönnum frá grænum löndum sé lítil, segir hún, græni liturinn sé eins konar heilbrigðisvottorð.
Því spyr ég: Hvernig ætla stjórnvöld að tryggja að fólk hafi aðeins haft viðkomu í grænum löndum og appelsínugulum en ekki rauðum löndum einhvern tímann á undan? Fólk gefur rangar upplýsingar um það, rétt eins og það brýtur sóttkví. Nú vitum við að tilraunin með PCR-vottorðin var að gefið væri út PCR-vottorð á brottfararstað, maður flygi til landsins, færi sóttkví í fimm daga og skimun. Það átti mögulega sleppa þessari sóttkví og skimun ef þetta myndi reynast vel, en staðreyndin er sú að 6% skila sér ekki, standa ekki við þetta, brjóta sóttkvína. Þess vegna fáum við aftur þessi smit. Hvernig er hægt að standa við það ferli sem byggir á þeim forsendum sem hafa gjörbreytst núna? Við vitum að þær hafa breyst.
Reynsla ríkja um allan heim sýnir okkur að hægt er að vernda líf og heilsu fólks og efnahag ríkisins, lífsviðurværi heimilanna, með því að setja tilteknar takmarkanir á frelsi fólks. Valið sem okkur virðist standa til boða er að setja harðari takmarkanir á landamærum eða harðari takmarkanir innan lands. Besta leiðin til að standa vörð um eðlilegt líf og eiga möguleika á ferðasumri innan lands er að herða takmarkanir á landamærunum. Þetta er það sem er á vogarskálunum; borgararéttindi fólks innan lands, réttindi fólks til að eiga eðlilegt líf og raunverulegt íslenskt ferðasumar hjá Íslendingum. (Forseti hringir.) Eini sénsinn sem við höfum er að herða takmarkanir á landamærum, en þetta litakóðunarkerfi opnar þær meira (Forseti hringir.) og umfram það sem við vitum að er ekki ráðlegt. Hvað hyggst forsætisráðherra gera í stöðunni?