151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

lax- og silungsveiði.

345. mál
[13:52]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við Miðflokksmenn styðjum þá viðleitni um minnihlutavernd sem frumvarp um lax og silung snýst aðallega um. Ég óskaði þó eftir að frumvarpið yrði tekið fyrir milli umræðna, einkum vegna ákvæða 3. gr. sem sýnast veikja verulega hæfiskröfur til nefndarmanna í matsnefnd. Sjáum við ekki tilefni til slíks í nefnd sem fjallar um málefni veiðifélaga þar sem aðild er áskilin að lögum og því nauðsynlegt að gæta að réttaröryggi í hvívetna. Lögðum við fulltrúar Miðflokksins fram breytingartillögu þess efnis að a-liður 3. gr. félli brott.

Herra forseti. Ég tel mig hafa ástæðu til að ætla að möguleiki sé á að nefndin geti náð samkomulagi um þetta atriði og kalla því umrædda breytingartillögu aftur til 3. umr. Munum við því ekki greiða atkvæði um 3. gr. og heldur ekki 5. gr. sem við teljum þurfa að ræða nánar. Að öðru leyti styðjum við frumvarpið.