viðræður við ráðherraráð Evrópusambandsins um samstarf í gjaldeyrismálum og gagnkvæmar gengisvarnir.
Herra forseti. Þetta var áhugaverð ræða hjá hv. þingmanni og margt mjög skemmtilegt þar. Ég get verið sammála mörgu, t.d. hafa Píratar eiginlega frá stofnun talað nokkuð jákvætt fyrir stofnun hliðargjaldmiðla ýmiss konar og að gjaldmiðlaútgáfa verði með aðeins frjálsari hætti þannig að þar er ákveðinn samhljómur. En mig langaði svolítið að forvitnast samt út af nokkrum atriðum og eitt er að hv. þingmaður talaði um áhættuna af spákaupmennsku. Nú eru ansi mörg lönd með einhvers konar gengismarkmið gagnvart öðrum gjaldmiðli, einhvers konar annan gjaldmiðil sem akkeri. Það eru til að mynda 38 lönd á heimsvísu með bandaríkjadollar sem sitt akkeri, 25 lönd sem eru með evru sem akkeri og átta eru með einhvers konar myntkörfu sem akkeri. Þar á meðal eru bæði lítil lönd og svolítið stór lönd, það mætti nefna Íran, Kósóvó, Bosníu-Hersegóvínu, Saó Tóme og Prinsípe o.s.frv. Ég velti því fyrir mér hvort hv. þingmaður hafi kynnt sér þessi lönd eitthvað, eitthvert þeirra landa sem stunda svona akkerisbindingu. Ef þessi hætta á spákaupmennsku er svo veigamikil — ég er sammála að hún er til staðar — hvers vegna fara þessi lönd þessa leið? Eru ekki mögulega til einhverjar varnir sem gera það að verkum að akkeristenging við annan gjaldmiðil er álitlegri í tilfelli þeirra 60 og jafnvel 70 landa sem stunda þetta með einum eða öðrum hætti? Höfum líka í huga að til er fleiri en ein leið til að binda með svona akkeri. (Forseti hringir.) Það er ekki bara hörð akkersbinding heldur er til skríðandi fyrirkomulag og fleira í þeim dúr. (Forseti hringir.) Og ég vil einmitt nefna, bara vegna lokaorða hv. þingmanns, að ég er ósammála því að þetta sé einfeldningsleg tillaga.