endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég flyt tillögu til þingsályktunar um endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja undirbúning að endurupptöku viðræðna um aðild að Evrópusambandinu, sbr. þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu, nr. 1/137, sem samþykkt var 16. júlí 2009.
Forsætisráðherra skipi þriggja manna nefnd, að höfðu samráði við þingflokka, til að stýra undirbúningsvinnunni í samstarfi við einstök ráðuneyti. Hlutverk nefndarinnar verði að meta hvernig og hvenær hefja skuli formlegar aðildarviðræður að nýju og undirbúa tillögu til þingsályktunar þar að lútandi, sem að fengnu samþykki Alþingis yrði borin undir þjóðaratkvæði til endanlegrar staðfestingar.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um endurupptöku viðræðna fari fram eigi síðar en í janúar 2022.“
Ef að líkum lætur og vonir mínar rætast erum við með þessu í fyrsta lagi að stuðla að aukinni umræðu og upplýsingum um Evrópusambandið en mér heyrðist á fyrri ræðum hér áðan að ekki veitti af. Í öðru lagi erum við að tryggja ekki síst ungu kynslóðinni í landinu tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, annars vegar að halda þjóðaratkvæðagreiðslu, eftir samstarf þvert á flokka, eftir umræðu í samfélaginu, um það hvort við eigum að taka það litla en mikilvæga skref að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið, ekki bara að það sé einhver skúffupappír eftir geðþótta í utanríkisráðuneytinu, hver sem utanríkisráðherra er hverju sinni. Í þriðja lagi, ef slík tillaga yrði síðan samþykkt, fengi þjóðin tækifæri til að segja álit sitt varðandi samning sem myndi þá liggja á borðinu. Með þessu erum við að tryggja að þjóðin fái mjög skýra aðkomu að ferlinu.
Markmiðið með tillögunni er að uppfylla vilja Alþingis sem lýst var með þingsályktuninni frá 16. júlí 2009, sem ég nefndi áðan, en Alþingi hefur ekki ályktað á neinn annan veg síðan. Til viðbótar ályktun þeirri verði forsætisráðherra falið að skipa nefnd þá sem ég gat um og reyna að tryggja, þvert á flokka, samstarf bæði inn í ráðuneytið en líka milli þeirra til að stuðla að upplýsingum og samtali hjá þjóðinni um mikilvægi þess að taka það skref að halda viðræðum áfram.
Í ljósi nýrra og breyttra aðstæðna og til þess að styrkja efnislegan undirbúning málsins er jafnframt rétt að nefndin hefji störf með því að kalla til sérfræðinga og skili í kjölfarið skýrslu um mat á þýðingu fjölþjóðasamvinnu fyrir Ísland á komandi árum. Ég held að mjög mikilvægt sé að við látum fara fram mat á því af því að það eru ríkar raddir hér uppi og sterkar innan ríkisstjórnarinnar. Það verður eflaust hluti af kosningabaráttunni að velja milli flokka sem vilja bara tvíhliða samstarf og þeirra sem vilja fjölþjóða samvinnu. Þess vegna tel ég líka mikilvægt að skýrslu um mat á þýðingu fjölþjóðasamvinnu verði skilað. Tilgangurinn er auðvitað að styrkja fullveldi landsins, efla stjórnmálaleg tengsl, treysta varnir, örva viðskipti, bæta efnahag og tryggja framgang markmiða Íslands í loftslagsmálum.
Ísland hefur nú í rúman aldarfjórðung verið aðili að innri markaði Evrópusambandsins með aðildinni að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Innri markaðurinn er kjarninn í starfi Evrópusambandsins. Aðild EFTA-þjóðanna að honum felur því í raun í sér aukaaðild að sambandinu.
Evrópsk löggjöf mótar réttarreglur á flestum sviðum í búskap þjóðarinnar. Viðbótarskrefið til fullrar aðildar yrði því minna en það sem stigið var á fyrri hluta tíunda áratugar síðustu aldar. Eigi að síður yrði verulegur pólitískur, lýðræðislegur og efnahagslegur ávinningur af því að njóta fullra réttinda og sitja við borðið með þeim ríkjum sem næst okkur standa, eins og Ísland gerir í Atlantshafsbandalaginu. Af hverju á eitthvað annað að gilda um efnahagssamvinnu þessara sömu landa en um varnarsamvinnuna sem hefur verið farsæl fyrir okkur?
Afleiðingar kórónuveirufaraldursins hafa gjörbreytt efnahagslegum aðstæðum. Ísland þarf af þeim sökum að nýta öll möguleg tækifæri sem örvað geta nýsköpun, eflt viðskipti og styrkt hagvöxt. Aukin alþjóðleg samvinna er óhjákvæmileg í þeim tilgangi. Loftslagsmálin kalla einnig á að ný skref verði stigin á þessu sviði. Og ég byði ekki í það hvar ríkisstjórnin væri hefði hún ekki verið í samfloti við Evrópusambandið þegar kemur að loftslagsmálum. Markmið og stefna Evrópusambandsins í loftlagsmálum hefur verið eins og svipa á ríkisstjórnina allt kjörtímabilið. Lokaskrefið til fullrar aðildar að Evrópusambandinu er að mínu mati nærtækasti og áhrifaríkasti kosturinn í þessu efni.
Ljóst er að undirbúningur málsins og viðræðurnar sjálfar munu taka talsverðan tíma. Af þeim sökum er enn ríkari ástæða til að hefjast strax handa. Efnahagsleg rök standa til þess að hraða ákvörðunum svo sem kostur er. Um leið er mikilvægt að þær séu undirbúnar af mikilli kostgæfni. Þjóðaratkvæðagreiðsla getur fyrst farið fram að lokinni almennri og vel upplýstri umræðu. Og ég trúi ekki að neinn sé á móti því.
Breytingar í gjaldmiðilsmálum eru að sjálfsögðu brýnasta verkefnið eins og málum er komið. Flutningsmenn hafa því samhliða þessari tillögu, og við gerðum það áðan, lagt fram tillögu til þingsályktunar og ræða þar um mikilvægi þess að fara í viðræður við Evrópusambandið um samstarf í gjaldeyrismálum og gagnkvæmar gengisvarnir. Náist skjótur árangur í gjaldmiðilssamstarfinu skapast að sjálfsögðu svigrúm til þess að undirbúa vandlega ákvarðanir um lokaskref til fullrar aðildar að Evrópusambandinu. Og að sjálfsögðu verður það aldrei gert án þjóðarinnar, hvert skref verður tekið með þjóðinni.
Eins og ég gat um samþykkti Alþingi 16. júlí 2009 að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Tæpu ári eftir ríkisstjórnarskipti 2013 lagði þáverandi utanríkisráðherra fram tillögu til þingsályktunar um að draga umsóknina til baka. Hana dagaði uppi á Alþingi og hlaut ekki afgreiðslu. Alþingi hefur því ekki ályktað á annan veg síðan. Tillaga utanríkisráðherra frá 2014 mætti harðri andstöðu í þjóðfélaginu. Alls skrifuðu 53.555 Íslendingar undir áskorun þar sem þess var krafist að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort halda ætti áfram viðræðum.
Vorið 2015 skrifaði utanríkisráðherra bréf til formanns ráðherraráðs Evrópusambandsins. Þar sagði að ríkisstjórnin hefði ekki áform um að hefja aðildarviðræður að nýju og ekki bæri af þeim sökum að líta á Ísland sem umsóknarríki.
Við myndun ríkisstjórnar 2016 var kveðið á um það í stjórnarsáttmála að Alþingi gæti fyrir lok þess kjörtímabils samþykkt að efna til leiðbeinandi þjóðaratkvæðis um framhald aðildarviðræðna. Í þeim ríkisstjórnarsáttmála sem Sjálfstæðisflokkurinn leiddi var það tryggt að fram færi umræða og atkvæðagreiðsla um framhald málsins.
Sú ríka krafa, sem fram kom með undirskriftasöfnuninni 2014, að þjóðin fengi að greiða atkvæði um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, verður ekki virt að vettugi.
Í ljósi þess hversu langur tími er liðinn frá samþykkt þingsályktunarinnar 2009 leggja flutningsmenn til þá málsmeðferð að Alþingi samþykki, að loknum nauðsynlegum undirbúningi, nýja tillögu um framhald aðildarviðræðna. Gildi hennar verði eigi að síður háð samþykki þjóðarinnar í allsherjaratkvæðagreiðslu. Þar yrði um að ræða bindandi þjóðaratkvæði. Ég hef ekki horfið frá þessari skoðun síðan ég tók þátt í atkvæðagreiðslunni 16. júlí 2009. Ég lagði til, ásamt núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla um upphaf viðræðna. Ég er enn þeirrar skoðunar að við eigum að leita til þjóðarinnar í svona stóru og mikilvægu máli og ekki vera smeyk við það.
Gildistaka endanlegs aðildarsamnings, ef þessi þingsályktunartillaga yrði samþykkt, yrði síðan á ný háð samþykki Alþingis og þjóðarinnar í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Frá lokum síðari heimsstyrjaldar hefur Ísland verið þátttakandi í margvíslegu fjölþjóðlegu samstarfi. Tilgangurinn hefur verið sá að styrkja stöðu landsins í samfélagi þjóðanna í menningarlegum efnum, stjórnmálalegu tilliti, að því er varðar varnir og öryggi og svo að því er tekur til efnahags og viðskipta. Óumdeilt er að þetta fjölþætta samstarf hefur styrkt fullveldi landsins og bætt efnahag þess.
Árið 1944 gerðist Ísland aðili að Bretton Woods-samkomulaginu um fjölþjóðlegt gjaldmiðlasamstarf. Aðild að Sameinuðu þjóðunum kom í kjölfarið. Síðan gerðist Ísland eitt af stofnríkjum Atlantshafsbandalagsins og tók þátt í stofnun Norðurlandaráðs. Ísland fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953 og var stofnaðili að Mannréttindadómstól Evrópu sex árum síðar, blessunarlega. Ísland tók einnig þátt í Almenna samkomulaginu um tolla og viðskipti, GATT, í lok sjöunda áratugar síðustu aldar og er aðili að Alþjóðaviðskiptastofnunni, WTO. Í byrjun áttunda áratugarins kom aðild að Fríverslunarsamtökum Evrópu og síðan aðild að innri markaði Evrópusambandsins með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið í byrjun tíunda áratugarins. Í framhaldi af því kom þátttaka í Schengen-samstarfi Evrópusambandsins árið 2001. Öll þessi skref voru á sinn hátt svar við breyttum aðstæðum. Þau sýna að við aðstæður þess tíma var talið skynsamlegast að leita skjóls og tryggja hagsmuni landsins í fjölþjóðlegu, alþjóðlegu samstarfi af ýmsu tagi. Allt þetta samstarf hefur þróast og breyst í tímans rás. Pólitískt og efnahagslegt vægi aðildar að einstökum samtökum hefur í sumum tilvikum aukist en minnkað í öðrum.
Vegna stærðar sinnar verða áhrif Íslands á alþjóðavettvangi alltaf takmörkuð. Aðildin að Atlantshafsbandalaginu, Fríverslunarsamtökum Evrópu og Norðurlandaráði hefur á hinn bóginn sýnt að áhrif Íslands eru meiri þegar það á sæti við borðið.
Með aðildinni að innri markaði Evrópusambandsins hefur verið tekin upp evrópsk löggjöf sem er ráðandi á öllum sviðum þjóðarbúskaparins. Flutningsmenn telja að það myndi styrkja stöðu landsins í Evrópu og auka áhrif þess að taka einnig sæti við borðið í Evrópusambandinu.
Að auki má annars vegar benda á þá staðreynd að loftslagsmálin eru nú eitt helsta hagsmunamál Íslands hvort heldur litið er til efnahags eða öryggis. Ólíklegt má telja að árangur náist í loftslagsmálum án fjölþjóðlegs samstarfs og mikilvægt að leita svara við því hvernig Ísland getur tekist á við loftslagsmálin í fjölþjóðlegu samstarfi.
Hins vegar er staðreyndin sú að í heimi alþjóðavæðingar hafa fjölþjóðafyrirtæki vaxið svo hratt að ítök þeirra og áhrif ógna á marga lund fullveldi þjóða, stórra sem smárra. Evrópusambandið hefur náð lengra en önnur fjölþjóðasamtök til þess að rétta hlut þjóðríkjanna gagnvart fyrirtækjasamsteypum á heimsvísu. Dettur nokkrum manni það í hug að við Íslendingar hefðum til að mynda náð öllum þessum reikisamningum ein og óstudd? Dettur einhverjum það í hug? Nei, að sjálfsögðu ekki. Við vorum í farsælu samfloti Evrópuríkja hvað það varðar.
Ótvírætt er að hraðar breytingar á heimsmyndinni og ný viðfangsefni kalla á að Ísland stígi ný skref fram á við í alþjóðlegu samstarfi eftir kyrrstöðu í rúman aldarfjórðung. Frá lokum síðari heimsstyrjaldar hefur aldrei liðið svo langur tími á milli mikilvægra nýrra skrefa í samvinnu Íslands við aðrar þjóðir.
Tvær meginleiðir eru færar fyrir Ísland á þessum krossgötum. Önnur er að mestu byggð á tvíhliða samstarfi og samningum. Hin er framhald á því fjölþjóðasamstafi sem við eigum nú í Evrópusambandinu, Atlantshafsbandalaginu og Norðurlandaráði.
Fyrri kosturinn myndi væntanlega leiða til þess að tekið yrði upp þéttara samband við Bretland og Bandaríkin og þeim fylgt eftir í gerð tvíhliða fríverslunarsamninga, líkt og mér finnst hæstv. utanríkisráðherra vilja. Þeir eru jafnan mun grynnri og umfangsminni en löggjöfin sem mótar innri markað Evrópu. Ef kosið yrði að fara þá leið með því að yfirgefa innri markaðinn eins og Bretar væri það gífurlega stórt skref, sem myndi hafa grundvallarbreytingar í för með sér.
Reynslan hefur ótvírætt sýnt að smáríki eru veikari í tvíhliða samstarfi en fjölþjóðasamstarfi. Icesave-deilan er einmitt til marks um það. Án regluverks Evrópusambandsins og EFTA-dómstólsins hefðu Bretar og Hollendingar staðið betur að vígi gagnvart Íslandi hefði Ísland verið eitt og ekki með EFTA-dómstólinn og Evrópulöggjöfina.
Seinni kosturinn er að stíga skref áfram á grundvelli þeirrar aukaaðildar að Evrópusambandinu sem segja má að innri markaðurinn og aðildin að Schengen feli í sér, að fullri aðild með sæti við borðið og þeim áhrifum sem það veitir. Það yrði minna skref en stigið var með aðildinni árið 1994 að innri markaðnum með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.
Við teljum engan vafa leika á því að seinni kosturinn sé vænlegri til þess að verja og treysta íslenska hagsmuni.
Fyrst og síðast ætlum við að stuðla að því að hér verði upplýst umræða, að þjóðin fái að taka ákvörðunina um næstu skref, ekki stjórnmálamenn í ráðuneytinu einhliða heldur að þjóðin taki ákvörðun um það hvort hún vilji halda áfram viðræðunum við Evrópusambandið. Og ef þjóðin segir já fái hún á endanum líka að taka afstöðu um samning í viðræðum við Evrópusambandið. Við það — og ég ítreka: Við það á enginn að vera hræddur.