151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[18:22]
Horfa

utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kemur hérna í hvern einasta fyrirspurnatíma og kvartar undan því að ráðherrar svari ekki spurningum. Ég spurði hv. þingmann einfaldrar spurningar, mjög einfaldrar spurningar: Þvælist það ekkert fyrir hv. þingmanni að afnema viðskiptafrelsi Íslendinga sem við erum búin að berjast fyrir í árhundruð? Hv. þingmaður veit það mætavel að ef við göngum í tollabandalagið þá erum við ekki lengur með viðskiptafrelsi. Svo einfalt er það. Hv. þingmaður skal aldrei koma hingað upp og segja það að ráðherrar svari ekki spurningum ef hv. þingmaður getur ekki svarað þessari einföldu spurningu. Hv. þingmaður sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði sagt: Við getum afnumið tolla. Við gerðum það. Þess vegna er tollfrelsi hér 90% miðað við 27% í Evrópusambandinu. Þess vegna myndu tollar hækka hér á hinum ýmsu vörum ef við gengjum inn og myndum afnema viðskiptafrelsi okkar Íslendinga (Forseti hringir.) því það er það sem við gerum ef við göngum í Evrópusambandið. Það er augljóst af svarleysi hv. þingmanns að það þvælist ekkert fyrir hv. þingmanni.