151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[18:39]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins að Icesave. Það er náttúrlega alveg ljóst út frá hvaða reglum EFTA-dómstóllinn dæmdi og hvaða reglur voru þar til viðmiðunar, það voru Evrópureglur. Þær voru forsendur fyrir því að málið féll Íslandi í hag. Svo einfalt er það. (Gripið fram í.) Já, en við unnum málið á grundvelli þeirra reglna. Við unnum málið á grundvelli reglnanna, alþjóðlegra reglna. Þannig er það.

Aðeins varðandi sjávarútveginn. Mín skoðun er sú, og ég tel það mjög raunhæft, að við getum haft sjávarútveginn eins og hann er í dag. Það er líka ákjósanlegt fyrir Evrópusambandið að líta til Íslands varðandi stjórn fiskveiða. Það eru því mjög miklar líkur á því að Ísland geti viðhaldið sínu sjávarútvegskerfi. Við vitum alveg hvað þarf að laga þar. Það er umræða um annað mál, eins og auðlindagjöldin og tímabundna samninga, en í grunninn er íslenska sjávarútvegskerfið þannig að ég bind miklar vonir við það og er bjartsýn í þá veru að við getum fengið mjög góða og ákjósanlega lausn sem sinni nákvæmlega hagsmunum Íslendinga þegar kemur að sjávarútvegi.

Síðan er landbúnaðurinn eftir og þar eru fólgin risatækifæri fyrir íslenska bændur og íslenska neytendur. Það getur verið að milliliðirnir verði ekki eins glaðir en fyrir íslenska bændur, neytendur og loftslagsmál eru risatækifæri fólgin í því að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið.