endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég nota tækifærið aftur og þakka fyrir þessa umræðu. Ég fagna henni og hún sýnir að við getum rætt þessi mál hvenær sem við viljum og ekkert sem stendur í vegi fyrir því. Það verður hins vegar að segjast út af þeim orðaskiptum sem við áttum hér áðan, þar sem ég var hvorki meira né minna ásakaður um að fara með ósannindi, það var ekkert rökstutt enda fór ég ekki með nein ósannindi, að það virðist vera að annaðhvort vilji hv. þingmaður, fyrsti flutningsmaður, ekki svara þeirri spurningu sem ég er búin að spyrja hv. þingmann um tvisvar, hvort það vefjist ekki fyrir hv. þingmanni að við afnemum viðskiptafrelsið, eða þá að umræðan í þingflokki og flokki hv. þingmanns um Evrópusambandið er svo lítil að menn vita það ekki að ef við göngum í Evrópusambandið þá afnemum við viðskiptafrelsi. Við göngum í tollabandalag. Þegar Bretar fóru út úr Evrópusambandinu þá fengu þeir frelsi til að semja við aðrar þjóðir. Þeir höfðu það frelsi ekki áður. Þeir höfðu ekki haft það í áratugi, ekki frá því að þeir gengu í Evrópusambandið.
Talandi um alþjóðastofnanir. Bretar voru ekkert við borðið í Alþjóðaviðskiptastofnuninni þegar þeir voru í Evrópusambandinu, þeir voru ekki þar. Við erum þar. Hv. þingmaður segir að það sé svo mikilvægt að vera í fjölþjóðasamstarfi en aðildarríki Evrópusambandsins eru ekkert þar. Ef við gengjum í Evrópusambandið værum við ekki lengur með sæti við borðið hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni vegna þess að við værum ekki með viðskiptafrelsi. Það er samið fyrir hönd ríkja Evrópusambandsins af embættismönnum í Brussel. Það er alveg ljóst hver munurinn er á viðskiptastefnu Íslands og Evrópusambandsins. Við erum með 90% tollfrelsi á tollalínunum okkar meðan það er 27% í Evrópusambandinu. Það þýðir að ef við göngum inn þá hækka tollar á þessum tollalínum sem núna er tollfrelsi á hjá okkur en ekki hjá Evrópusambandinu. Að auki kom það fram í aðildarviðræðunum og hefur komið fram á þingi að ef við gengjum í sambandið væri í frumáætlun tollyfirvalda, og þetta kemur fram í skýrslunni Áfram gakk, svo ég vísi beint í hana, með leyfi forseta:
„… gert ráð fyrir að kostnaður við upptöku nýrra tollkerfa myndi nema allt að 30 millj. evra. Þá lá fyrir að af hálfu ESB var gert ráð fyrir töluverðri fjölgun starfsfólks með tilheyrandi kostnaði“ — ef við gengjum inn. — „Til samanburðar má nefna að á þeim tíma störfuðu 168 manns“ — þ.e. á Íslandi — „við tollamál en hjá tollyfirvöldum á Möltu störfuðu 430 manns og í Lúxemborg 495 manns.“
Þetta liggur allt saman fyrir. Ég held að það væri ótrúlega skynsamlegt af hv. þingmönnum sem í alvöru koma fram með tillögur um að við Íslendingar afnemum viðskiptafrelsi okkar að kynna sér þessi mál. Það lítur út fyrir það, virðulegi forseti, að hv. þingmenn sem koma hér fram á Alþingi Íslendinga og flytja tillögur um að við eigum að afnema viðskiptafrelsið, að við Íslendingar afnemum viðskiptafrelsi okkar, hafi ekki kynnt sér það mál. Í það minnsta svarar hv. þingmaður, sem er fyrsti flutningsmaður, ekki þeirri spurningu hvernig henni finnist það vera. Einn af mörgum kostum EES-samningsins er að við getum áfram viðhaldið viðskiptafrelsi okkar. Og af því að hv. þingmaður segir að það skipti svo miklu máli að vera í fjölþjóðlegum samtökum þá er hv. þingmaður leggja til að við göngum úr EFTA, því að það er það sem við gerum ef við göngum í Evrópusambandið. EFTA eru fríverslunarsamtök og við getum ekki verið þar lengur ef við göngum í Evrópusambandið og afsölum okkur viðskiptafrelsinu til embættismanna í Brussel.
Það lá alveg fyrir, virðulegi forseti, og kemur fram í þingskjölum að ef við hefðum gengið inn, og það var áður en Sjálfstæðisflokkurinn gekk í það að lækka og afnema tolla sem hv. þingmaður kallaði eftir og hefur verið gert, myndi það koma sér sérstaklega illa fyrir iðnaðinn og sjávarútveginn af því að tollar myndu hækka á aðföngum. Þetta var löngu áður en var farið í þessa miklu tollaniðurfellingu. Og það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni, þó að hv. þingmaður hafi ekki nefnt það, að Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir því vegna þess að við í Sjálfstæðisflokknum aðhyllumst fríverslun.
Hv. þingmaður nefndi sjávarútveginn og er alveg ótrúlega sannfærður um að við næðum hagstæðum samningum. Við þyrftum alltaf að vera aðilar að sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB. Og af hverju heitir hún sameiginleg? Vegna þess að hún er sameiginleg. Þá fara yfirráðin yfir sjávarútvegsmálum til Brussel. Hv. þingmaður segir að það hafi engin veitt hérna. Vandinn er sá, og við tryggðum það þegar við gengum í EES, að erlendir aðilar geta ekki keypt sig inn í sjávarútveginn en við gætum aldrei staðið á því ef við gengjum í ESB. Ef menn skoða reynslu Breta þá sjá þeir eftir þessa áratugi hvað þeir veiða mikið í eigin lögsögu. Í breskum fjölmiðlum er haldið fram að það séu 25%. Eitt er víst að þegar þeir reyndu að ganga út var það krafa Evrópusambandsins að fyrirkomulagið yrði óbreytt hvað það varðaði að Evrópusambandið gæti enn þá veitt í breskri lögsögu. Svo deila menn um samninginn sem liggur til grundvallar, hvort þeir geti komið sér út úr honum eða ekki. Það var krafa Evrópusambandsins. Sameiginleg sjávarútvegsstefna heitir sameiginleg sjávarútvegsstefna af því að hún er sameiginleg. Þannig að það liggur alveg fyrir að við værum ekki bara að afnema viðskiptafrelsið heldur að fara í sameiginlega sjávarútvegsstefnu. En auðvitað mætti nefna margt, margt fleira sem gerði það að verkum að við værum í miklu verri stöðu en við erum í núna ef við gengjum í Evrópusambandið.
Hv. þingmaður nefnir loftslagsmálin. Bíddu, hvað er það nákvæmlega sem kemur í veg fyrir það að við getum gert allar þær áætlanir og farið í allt það í loftslagsmálum sem við viljum vegna þess að við erum ekki í Evrópusambandinu? Er eitthvað sem bannar okkur að gera það sem við viljum í loftslagsmálunum núna? Nei, við ráðum því sjálf. Við ráðum því sjálf og íslenskir kjósendur kjósa flokka m.a. út frá þeim forsendum hvaða stefnu og skoðanir þeir hafa í loftslagsmálum.
Það að við séum að efla varnir okkar og treysta varnir okkar með því að ganga í Evrópusambandið er röksemd sem stenst enga skoðun, enga. Við erum ekki bara meðlimir í NATO, af því að hv. þingmaður talar niður tvíhliða samstarf, við erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Ég vona að hv. þingmaður sé ekki orðinn andsnúinn honum. Núna eftir að Bretar fara út eru innan við 20% af hernaðarmætti Atlantshafsbandalagsins í Evrópusambandinu, innan við 20%, og ekkert sem bendir til þess að við værum eitthvað að styrkja varnir okkar ef við gengjum þarna inn.
Ef við skoðum hvernig okkur hefur gengið, hagvöxt hjá okkur miðað við helstu ESB-löndin að meðaltali — auðvitað eru menn alltaf í villandi umræðu hérna af því að það er mjög mismunandi staða í Evrópusambandslöndunum, það gengur misjafnlega, og þegar menn tala um evruverð og evruvexti þá er það nokkuð sem er ekki til, en við getum farið nánar í það — er ekkert sem bendir til þess að okkur gæti farnast betur efnahagslega enda höfum við komið afskaplega vel út í samanburði við þær þjóðir sem eru með okkur í þessari heimsálfu.
Virðulegi forseti. Mér sýnist að niðurstaðan sé sú að þeir sem flytja þessa tillögu átti sig ekki á því hvað felst í því að vera í tollabandalagi ESB. Ég held að það sé nokkuð sem við verðum að horfast í augu við. Ég hvet alla til að ræða eins mikið og þeir geta um Evrópusambandið og ég held að það væri gott ef hv. þingmaður myndi byrja á því að kynna sér þessi mál því að það hefur ekki verið neitt leyndarmál neins staðar hvað felst í því að vera í tollabandalagi ESB.