endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Aðeins út af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni. Við skulum hafa það hugfast að hvert ríki innan ESB sem hefur aðgang að sjó og hefur einhverja sögu varðandi fiskveiðar er með sína eigin fiskveiðilöggjöf. Af hverju nefnir ráðherrann það ekki? Af því að það hentar ekki leikjafræðinni fyrir prófkjör. Sameiginlega sjávarútvegsstefnan, út á hvað gengur hún? Fyrst og fremst sjálfbærni. Auðvitað er sjálfbærni ekki það sem er efst í huga utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, að sjálfsögðu ekki. Hvert ríki hefur sína fiskveiðilöggjöf. Og ef við skoðum það sem við sjáum, söguna, tölurnar, bendir allt til þess að við munum fá afar hagstæðan samning. Út á það gengur þessi tillaga.
Spurning mín til hæstv. utanríkisráðherra er þessi: Hvað er það sem hann hræðist við að stíga þetta skref, það varfærna skref að stuðla að upplýstri umræðu í samfélaginu, fræða hvert annað, eiga rökræður úti í samfélaginu og leyfa síðan þjóðinni, á þeim forsendum og að þeim undirbúningi loknum, að taka ákvörðun um hvort halda eigi áfram? Eða vill ráðherra sjálfur draga blaðið héðan og setja niður í skúffu og segja: Ég ætla að ákveða þetta. Ég ætla að ákveða þetta fyrir þjóðina af því að ég einn veit. Ég ætla ekki að treysta ykkur. Ég einn veit.
Ég er bara tala um þetta skref. Treystir ráðherra þjóðinni til að taka ákvörðun um hvort halda eigi áfram með aðildarviðræðurnar? Það er fyrsta spurning.
Önnur spurning. Ég hlýt að spyrja hæstv. ráðherra að því, miðað við hvernig hann talar um Evrópusambandið: Var hann t.d. á móti því að fara í samflot með Evrópusambandinu þegar kom að bólusetningum og öflun bóluefna? (Forseti hringir.) Er hæstv. ráðherra algjörlega á móti því? Miðað framsetningu hans hér er ekki hægt að álykta annað en að hann hafi alls ekki viljað vera í samfloti með Evrópusambandinu varðandi bólusetningar.