endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Þá er komið að endurteknu efni að nokkru leyti, reyndar frá árinu 2009, en þá gafst mér ekki tækifæri til þess að fjalla um sambærilegt mál, þingsályktunartillögu um viðræður Íslands um aðild að Evrópusambandinu. En það er þó rétt að halda því til haga að þótt ég hafi misst af fyrri umferðinni í þessu þá var ég svo sannarlega ekki að kalla eftir þeirri seinni. Ég græt það svo sem ekki að málið sé komið hingað til þingsins og þingheimur taki afstöðu til þessarar tillögu Viðreisnar. Þessi þingsályktunartillaga kemur reyndar á síðustu dögum kjörtímabilsins og virðist með einhverjum hætti vera ætlað að hafa áhrif út fyrir þetta kjörtímabil. Það eru einhvers konar þingsköp sem ég hef ekki náð að tileinka mér. Það er markmiðið með þessari tillögu.
Það er ýmislegt í þessu sem vekur athygli. Rökunum, sem hér eru færð fyrir nauðsyn þess að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju, má skipta í þrennt eða kannski fernt. Það eru í fyrsta lagi gjaldmiðilsmálin sem talin eru mjög brýnt verkefni og var fjallað um í sérstöku þingmáli hér á undan, um bindingu krónunnar við evruna. Ég ætla ekki að fjalla um það sérstaklega. En svo eru önnur rök sem lúta að alþjóðasamstarfi almennt og loftslagsmálum og að lokum er vikið líka að t.d. Icesave-málinu sem ég ætla að fá að fjalla stuttlega um í lokin. En það vekur athygli að það er ekkert fjallað um sjávarútvegsmál í þessari þingsályktunartillögu. Hv. flutningsmaður tillögunnar hefur nefnt að það sé einmitt hlutverk þeirrar nefndar sem eigi að taka þetta til umfjöllunar, verði þetta samþykkt, að fjalla um þau. Formaður Viðreisnar lýsti þó þeirri skoðun sinni, sem ég verð að segja að hljóti að vera nýmæli og nýjar fréttir eða fréttir fyrir þá sem fylgst með málum, að það væri trú hennar og sannfæring að Evrópusambandið muni fallast á allar kröfur Íslendinga í sjávarútvegsmálum og horfa öfundaraugum til okkar ágæta sjávarútvegskerfis og jafnvel taka það upp. Þannig skildi ég orð hennar í andsvari við mig hér á undan.
Það er auðvitað full ástæða fyrir Evrópusambandið til þess að horfa öfundaraugum á íslenska sjávarútvegskerfið. En það eru fréttir fyrir örugglega fleiri en mig ef Evrópusambandið ætlar ekki að halda sig við hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu heldur láta Ísland leiða veginn í þeim efnum. Ég hef ekki mikla trú á því, satt best að segja.
Hér er það rakið og látið í veðri vaka að innganga Íslands í Evrópusambandið sé bara enn eitt skrefið og eðlilegt skref í þeirri auknu alþjóðasamvinnu sem Íslendingar hafa tileinkað sér síðustu árin og um árabil. Ísland, eins og menn þekkja, er stofnaðili að NATO, tók þátt í EFTA, á aðild að Evrópuráðinu og þar fram eftir götunum, ýmsu alþjóðlegu samstarfi. Hér er látið í það skína að næsta eðlilega skref fyrir Ísland sé að ganga inn í Evrópusambandið.
Um þetta verð ég að segja og benda á að alþjóðasamstarf ríkja er auðvitað með ýmsum hætti. Ríki geta tekið þátt í víðtæku samstarfi eða þrengra samstarfi sem lýtur kannski ákveðnum tilteknum þáttum og það samstarf er misvíðtækt og misíþyngjandi. Sumt felur jafnvel í sér einhvers konar afsal á fullveldi á þrengri sviðum en þó afmörkuðum. Hér þarf að hafa í huga að ESB er mjög víðtækt samstarf um nánast alla málaflokka sem lýtur almennt stjórn þeirra ríkja sem aðild eiga að bandalaginu. ESB er miðstýrt sambandsríki en ekki alþjóðasamstarf eins og hvert annað alþjóðasamstarf með hefðbundnum hætti. ESB er miðstýrt sambandsríki og aðild að því felur í sér fullkomið framsal fullveldis í ákveðnum þáttum. Það er meira að segja dómstóll Evrópusambandsins sem kveður upp dóma sem dómstóllinn sjálfur telur að bindi aðildarríkin. En aðildarríki Evrópusambandsins hafa hins vegar í auknum mæli bent á það að dómstóllinn geti ekki svipt ríkin því fullveldi sem dómstóllinn hefur þó reynt að gera á síðustu árum í vaxandi mæli. Þetta er grundvallarmunur á Evrópusambandinu annars vegar og hefðbundnu alþjóðasamstarfi hins vegar, þetta mikla framsal fullveldis.
Hv. þingmaður og framsögumaður málsins og flutningsmaður svaraði, fannst mér, út og suður spurningu minni um það hvernig menn í Viðreisn geti túlkað það sem svo að Icesave-deilan hafi verið leyst af Evrópusambandinu sjálfu. Ég man ekki betur en að Icesave-deilan hafi verið búin til af Evrópusambandinu sjálfu. Hún spratt upp af Evrópusambandinu sjálfu, ef ekki með innleiðingu á reglum Evrópusambandsins, sem menn geta deilt um hvort hafi verið gott skref, jákvætt skref í sjálfu sér fyrir Ísland eða ekki, þá í síðasta lagi með málshöfðun stofnunar Evrópusambandsins, Eftirlitsstofnunar EFTA, á hendur Íslandi. Það var stofnunin sjálf, ESA, sem höfðaði mál á hendur Íslandi til greiðslu á kröfum sem síðan reyndust ólögmætar og löglausar, löglausum kröfum Evrópusambandsríkjanna. Það er fullyrt í þingsályktunartillögu Viðreisnar um inngöngu Íslands eða aðildarviðræður inn í Evrópusambandið, þeim málflutningi til rökstuðnings, að reynslan hafi ótvírætt sýnt að smáríki séu veikari í tvíhliða samstarfi en fjölþjóðasamstarfi og Icesave-deilan sé til marks um það, án regluverks Evrópusambandsins og EFTA-dómstólsins hefðu Bretar og Hollendingar staðið betur að vígi gagnvart Íslandi. Þetta er fullyrt í þessari greinargerð. Við Íslendingar hefðum nú bara staðið ágætlega ef Eftirlitsstofnun EFTA-ríkjanna og ein af stofnunum Evrópusambandsins hefði ekki höfðað mál á hendur Íslandi. Þá hefðu Íslendingar staðið alveg ágætlega. Þessi fullyrðing er alveg fráleit að mínu mati og ósæmandi stjórnmálaflokki hér á þingi sem vill láta taka sig alvarlega í svo stóru máli sem lýtur að fullveldi Íslands eins og þetta mál, Icesave, gerði og gerir enn og hefur að mörgu leyti fordæmisgefandi áhrif, sem menn eiga að hafa í huga.
Ég vil nefna það líka að Evrópusambandið og Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, var með umsátur um landið í nokkur ár til þess að knýja íslenskan almenning til að gangast í ábyrgð fyrir skuldum sem almenningur bar enga ábyrgð á. Ég hef ekki mikið álit á slíku regluverki og þaðan af síður hef ég trú á að þetta regluverk þjóni hagsmunum lítillar þjóðar sem vill teljast fullvalda. Ég geri athugasemdir við þessa tilvísun.
Að lokum vil ég gera alvarlega athugasemd við þau rök sem færð eru fyrir þessu máli, að það séu loftslagsmálin sem séu svo brýn að það kalli á að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB sem endi með inngöngu Íslands í ESB. Loftslagsmálin. Því miður hefur Ísland innleitt allt of mikið af reglum Evrópusambandsins nú þegar, ég held bara allar í loftslagsmálum, og gengið í samkomulag með Noregi annars vegar og hins vegar með Evrópusambandinu um að fara leiðir Evrópusambandsins í loftslagsmálum og það þótt að Ísland hafi ekkert með það að gera vegna þess að Ísland nýtur sérstöðu í loftslagsmálum. Ísland er ekki umhverfissóðaríki þegar kemur að losun gróðurhúsalofttegunda eins og Evrópusambandsríkin eru. Við eigum ekkert með það að gera að vera í sambandi við Evrópusambandið og gera samkomulag við það í þessum málum, hvorki í gegnum EES-samninginn og þaðan af síður er það ástæða (Forseti hringir.) til að ganga í Evrópusambandið, í gin ljónsins, fullkomlega, á þessum forsendum, loftslagsmálunum.