151. löggjafarþing — 80. fundur,  19. apr. 2021.

endurupptaka viðræðna um aðild að Evrópusambandinu.

53. mál
[19:13]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú svo sem ekki að fara að orðlengja þetta sérstaklega. Hér flutti hv. þingmaður mjög skýra tölu þar sem sjónarmið hennar komu mjög rækilega fram. Það er bara eitt sem vafðist aðeins fyrir mér varðandi Icesave. Hv. þingmaður sagði eitthvað á þá leið að það hefði verið Evrópusambandið sem átti upptökin að Icesave-deilunni, eitthvað á þá leið. Þá vaknar kannski sú spurning í framhaldi af því: Var það Evrópusambandið sem stofnaði Icesave-reikningana?