151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

Frestun á skriflegum svörum.

[13:00]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hafa bréf frá eftirfarandi ráðherrum þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurnum: Frá heilbrigðisráðherra vegna fyrirspurnar á þskj. 1087, um aðgengi að Nyxoid-nefúða eða sambærilegu lyfi, frá Söru Elísu Þórðardóttur; frá utanríkis og þróunarsamvinnuráðherra vegna fyrirspurna á þingskjölum 1134, um tollasamning við Evrópusambandið, frá Sigurði Páli Jónssyni, á þskj. 1130, um ráðgjafarþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni, frá Gunnari Braga Sveinssyni, á þskj. 1147, um lagalega ráðgjöf, frá Birni Leví Gunnarssyni; og loks frá umhverfis- og auðlindaráðherra vegna fyrirspurnar á þingskjali 1129, um ráðgjafarþjónustu, verktöku og tímabundin verkefni, frá Gunnari Braga Sveinssyni.