151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

um fundarstjórn.

[13:02]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Í morgun var fundur í atvinnuveganefnd. Í síðustu viku sendi ég nefndarálit til nefndarinnar og bað formanninn skriflega og á fundi um að taka það mál á dagskrá til að ræða hvort við vildum taka málið út og þá hvaða hv. þingmenn vildu vera með á álitinu. Málið er 44. mál þingsins, sem er nú ekki há tala, virðulegur forseti. Það er tilbúið. Öllum gestakomum er lokið. Ég hef spurt í nefndinni hvort fólk vilji fleiri gesti en fékk engin viðbrögð. Nefndarálitið er tilbúið en hv. formaður nefndarinnar, Lilja Rafney Magnúsdóttir, neitar að setja málið á dagskrá, sem samkvæmt mínum skilningi er þvert á reglur forsætisnefndar og þá þingskapa.

Það er leiðinlegt að segja frá þessu hérna, virðulegi forseti, vegna þess að þetta kjörtímabil hefur verið óvenjufriðsælt, eins og Vinstrihreyfingin – grænt framboð ætti hvað best að geta vitnað um. Það er leiðinlegt að þurfa að fara í einhvern slag við formann atvinnuveganefndar yfir jafn einföldum hlut og að setja mál á dagskrá. Málið er tilbúið. Það er búið vera tilbúið í einhvern tíma. Það eru engar málefnalegar ástæður fyrir þessum töfum. Hv. formaður nefndarinnar hefur enga ástæðu til þess að hafna því að setja mál á dagskrá og honum ber að gera það.