störf þingsins.
Herra forseti. Minnisblöð með tillögum sóttvarnalæknis eru orðin mörg í heimsfaraldrinum. Ráð hans hafa reynst okkur vel og hæstv. heilbrigðisráðherra hefur farið eftir þeim, sem betur fer. Ef sóttvarnalög koma í veg fyrir að hans góðu ráð komist til framkvæmda þarf að breyta lögunum. Samfylkingin hefur lagt fram slíkt frumvarp sem væntanlega kemur til umræðu á morgun. Ég treysti því að hv. stjórnarþingmenn komi ekki í veg fyrir að svo brýnt Covid-mál komist á dagskrá, jafnvel þó að það sé lagt fram af stjórnarandstöðuflokki. Við erum öll í þessu saman, er það ekki? Og veiran spyr ekki um flokksskírteini.
Verði frumvarpið að lögum verður sóttvarnayfirvöldum veitt heimild til að gefa út reglugerð sem skyldar ferðamenn til sóttkvíar eða einangrunar í sóttvarnahúsi á vegum stjórnvalda ef vísbendingar eru um að lýðheilsa sé í yfirvofandi hættu. Ávallt skal þó gæta meðalhófs í þessu sem öðru og ákvæðinu skal ekki beitt nema ríkar ástæður séu til. Því fyrr sem við náum smitum niður því fyrr náum við að lifa eðlilegu lífi. Bólusetningar og sóttvarnir sem duga þar til þorri landsmanna hefur fengið mótefni fyrir veirunni. Gleymum því samt ekki að fullnægjandi árangur næst ekki nema hann náist í öllum löndum heims. Veiran virðir ekki landamæri. Við eigum að læra af öðrum löndum, horfa til Nýja-Sjálands og þeirra landa sem hafa náð bestum árangri. Stjórnvöld verða að leita allra leiða til að létta fólkinu lífið sem þjáist vegna Covid hér á landi, hvort sem það er heilsufarslega, félagslega eða vegna atvinnumissis. Látum ekki fólkið sem slegið er forréttindablindu ráða för. Látum almannahag ráða för.