störf þingsins.
Virðulegi forseti. Íþróttir eru stór hluti af samfélögum heimsins. Íþróttir geta sameinað marga mismunandi hópa og haft mikil áhrif í hverju samfélagi fyrir sig. Íþróttir eru okkur mjög mikilvægar og eru einn grunnurinn að velferðarsamfélagi okkar. Við búum svo vel hér á Íslandi að íþróttahreyfingarnar eru að mestu leyti drifnar áfram af sjálfboðaliðastarfi og eru einn lykillinn að lýðheilsu, forvörnum og heilbrigði þjóðarinnar. Með íþróttunum verðum við að standa.
Nú sjáum við þjóðarleiðtoga víða um heim, síðast í Bretlandi, prinsinn sjálfan, nafna minn, og forsætisráðherrann, Boris Johnson, berjast gegn svokallaðri ofurdeild þar sem einmitt er verið að reyna að færa íþróttirnar frá þessu heilbrigða samfélagi sjálfboðaliða og heilbrigðis yfir í hreinan „bissness“. Verið er að færa þær yfir í að vera stýrt af fjármagninu. Því er vel að þeir séu á móti ofurdeildinni.
Nú, eftir þær miklu raunir og áskoranir sem Covid hefur fært íslensku íþróttahreyfingunni, tel ég mjög mikilvægt að í þeim aðgerðum sem við eigum eftir til að ljúka Covid-baráttunni, sem við ætlum að gera saman, sé horft til íþróttanna, að íþróttastarfið fái að vera í sem föstustum skorðum og ekki sé verið að hringla meira með það. Við þurfum að gera það við getum til að íþróttahreyfingin geti áfram haldið úti sem eðlilegastri starfsemi. Við verðum að tryggja að íþróttirnar komi standandi á fótunum út úr Covid og að fólk sé tilbúið til að standa undir íþróttafélögunum og vinna áfram sjálfboðavinnu eftir Covid.