151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:29]
Horfa

Brynjar Níelsson (S):

Hæstv. forseti. Ég tek ekki oft til máls undir þessum dagskrárlið en hyggst gera það núna til að vekja athygli á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun með Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og Unni Gunnarsdóttur, sem fer fyrir Fjármálaeftirlitinu, þar sem farið var yfir árangur af því að sameina Fjármálaeftirlitið Seðlabankanum. Það er mat yfirstjórnar Seðlabankans að það hafi tekist með afbrigðum vel og styrkt eftirlit með fjármálakerfinu. Það sem vakti mesta athygli mína er afstaða seðlabankastjóra og seðlabankastjóranna til þess hlutverks sem þeir sinna, mikilvægi þess að eftirlitið sé virkt, mikilvægi leiðbeiningarþáttar eftirlitsins. Það kom skýrt fram að það er hagur okkar allra að fjármálakerfið sé gott og stöðugleikinn mikill. Því þarf að nálgast þetta verkefni með þeim hætti að við viljum gera vel og það eru hagsmunir okkar allra að vel gangi. Það var mjög ánægjulegt að heyra hljóðið í yfirmönnum bankans um hversu vel hefur til tekist í þessu.