151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Fjármálaráðherra tók dæmi nýlega í umræðunni við mig um fátækt, um stöðu einstæðs foreldris með tvö börn. Telur hann að breytingar á barnabótum í tíð þessarar ríkisstjórnar hafi styrkt stöðu einstæðra foreldra með 300.000 kr. í tekjur á mánuði um meira en 100.000 kr. á ári. Ef við viljum mæla í það í hafragrautsskálum eru það margar skálar. Það er hægt að kaupa ótrúlega margar hafragrautsskálar fyrir hækkun á barnabótum, sagði fjármálaráðherra. En ef einstætt foreldri, öryrki eða sá atvinnulausi á engar 8.000 kr. á mánuði þá kaupir hann ekki neitt í matinn. Er ríkisstjórnin með á dagskrá sinni núna að gera eitthvað fyrir þennan fámenna hóp fátækra, eins og fjármálaráðherra telur hópinn vera? Nei. Er þeirra tími kominn? Nei. Hvers vegna ekki? Það er ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að gera nokkurn skapaðan hlut fyrir þennan hóp núna. Nei, ekkert, því miður.

Hæstv. forsætisráðherra sagði í gær í óundirbúinni fyrirspurn við mig að hún gæti talið upp ýmislegt, m.a. úrbætur handa tekjulægstu örorkulífeyrisþegunum. Hún segir að ríkisstjórnin hafi dregið úr skerðingum, lækkað skatta, sérstaklega á tekjulægsta hópinn. Já, ríkisstjórnin lækkaði skattprósentuna með hægri hendinni en kom svo og lækkaði persónuafsláttinn með þeirri vinstri. Með þeirri hægri-vinstri-snú-sýndarmennsku tók hún til baka stóran hluta skattalækkunarinnar. Ef henni hefði verið umhugað um fátækt fólk hefði hún látið persónuafsláttinn í friði, hækkað hann og þá eingöngu fyrir þá tekjulægstu eins og henni bar að gera.

Hvar á að fá peninga fyrir þá sárafátæku, spyr fjármálaráðherra. Hann spyr ekki þeirrar spurningar þegar hann dælir milljörðum króna til fyrirtækja sem greiða sér milljarða í arð. Þá milljarða ásamt þeim milljarða króna hækkunum sem auðlindaskattur gæti skilað ríkinu á nota til að útrýma fátækt. Þar er peningana að finna, hæstv. fjármálaráðherra.