störf þingsins.
Virðulegur forseti. Árið 2008 var okkur Íslendingum með sanni erfitt þegar íslensku bankarnir hrundu eins og spilaborgir. Bankar hrundu reyndar víðar en hér var fallið mikið vegna þess hversu stórt umfang bankanna var í íslensku efnahagslífi. Í kjölfarið tóku við miklir erfiðleikar, fyrst með pólitískum óstöðugleika en síðar með vinstri stjórninni. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur setti tvö meginmál á dagskrá, annars vegar niðurskurð og hins vegar Evrópusambandið. Ég tel að við höfum lært að báðar þessar aðgerðir voru rangar og óskynsamlegar sem leið út úr kreppunni. Nú hafa allir helstu sérfræðingar lagt til að ekki sé hægt að spara sig út úr Covid-kreppunni og að hlutverk hins opinbera í þessum kringumstæðum sé að spýta í með innviðafjárfestingum, lánum, stuðningi og jafnvel styrkjum. Það hefur núverandi ríkisstjórn gert og nýjasti samanburður AGS ber þess glöggt merki. Stóra málið er auðvitað að aðgerðirnar virki og það eru þær að gera.
Það skýtur mjög skökku við að þingflokkur Viðreisnar leggi það nú til á síðustu metrum kjörtímabilsins að dusta rykið af gömlum tillögum Samfylkingarinnar, sem voru viðbragð við síðasta hruni, um að sækja um aðild að Evrópusambandinu og taka upp evruna. Sú tillaga gerði ekkert gagn þá en mikið ógagn. Hvernig dettur fólki í hug að sú leið komi að gagni nú? Engin góð rök hafa verið færð fyrir því að það að ganga í Evrópusambandið gagnist íslenskri þjóð fram yfir það fyrirkomulag sem við höfum í dag með EES-samningnum þar sem við njótum kosta innri markaðar en þurfum ekki að lifa með öllum ókostum skrifræðisbáknsins í Brussel.