störf þingsins.
Forseti. Mig langar að brydda upp á, ekki endilega nýmæli en taka upp mál sem er til umfjöllunar í þingnefnd. Það er stundum þannig að við erum með mál og tökum 1. umr. um þau, svo fara málin inn í þingnefnd og eru þar, ekkert er minnst á þau í þingsal fyrr en þau koma hingað aftur, nánast eins og við séum að læra fyrir próf. En ég vil hafa ákveðið símat í gangi og halda á lofti umræðunni um hið stóra þjóðþrifamál sem heitir hálendisþjóðgarður. Það er stórt og mikið mál sem er í stjórnarsáttmála og ríkisstjórnarflokkarnir þrír sammæltust um að klára á þessu kjörtímabili þegar þeir samþykktu stjórnarsáttmálann. Ýmsar athugasemdir hafa komið fram við málið eins og gerist og gengur með mál af þeirri stærðargráðu og við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd erum að setjast yfir þær í einhverri röð. Vonandi einhendum við okkur með öflugum hætti í umfjöllun um það sem fyrst en ýmislegt annað hefur borið á góma. Sem framsögumaður málsins hef ég haft þann hátt á að ég hef farið býsna víða, þó eins og sóttvarnatakmarkanir leyfa, heyrt í fólki og gert mér far um að heyra ekki síst í helstu gagnrýnendum málsins, heyra hvað þeir hafa við málið að athuga og sjá hvernig hægt er, og þá hvort, að ná saman um einhverja lausn sem við getum staðið samhuga á bak við. Ég er þeirrar skoðunar að vel sé hægt að gera það og ég hlakka til að taka efnismeiri umræðu um málið þegar það kemur frá hv. umhverfis- og samgöngunefnd.