skóli án aðgreiningar.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu sem er mjög mikilvæg. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að eitt af því sem við fórum í um leið og ég tók við þessu embætti var einmitt að skoða þennan mun, skoða hvað er að koma út úr alþjóðlegu PISA-könnuninni og reyna að komast til botns í því. Af hverju hafa hlutirnir þróast eins og þeir hafa verið að þróast? Í kringum árið 2000 voru íslenskir nemendur held ég númer tvö í lesskilningi og eitt í stærðfræði og við höfum auðvitað spurt okkur: Af hverju er þróunin svona? Það sem við gerðum og ég gerði strax var að hugsa: Hvernig eflum við menntakerfið? Eitt af því sem við sáum var að eftir að kennaranámið var lengt, sem ég held að hafi reyndar verið mjög góð breyting, voru ekki jafn margir sem sóttu um að fara á menntavísindasvið. Við hugsuðum: Ef við ætlum að efla menntakerfið þurfum við að auka eftirspurn eftir því að fara í kennslu og efla alla umgjörð í kringum kennara. Við fórum strax í þær umbætur og lögðum sérstaka áherslu á lesskilning, stærðfræði og náttúrugreinar. Við réðumst í aðgerðir til að fjölga kennaranemum og hver hefur árangurinn verið? Árangurinn er sá að eftirspurn eftir því að fara í nám á menntavísindasviði, bæði á menntavísindasvið Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri, hefur aukist um 153%, sem segir okkur að það er gríðarlegur meðbyr með því að efla menntakerfið. Við byrjum á því að stuðla að því að við fáum öflugt fólk til kennslu, nákvæmlega eins og hv. þingmaður nefndi hér í upphafi.
Menntastefnan byggir einmitt á þessu. Hún byggir á því að við ætlum að hafa hér framúrskarandi menntun alla ævi og leggja grunninn að því að það sé mjög eftirsóknarvert að sinna kennslu á Íslandi. Sú aðgerð hefur heppnast mjög vel.
Næst vil ég nefna að við höfum farið í margar umbótaaðgerðir og sérstaklega höfum við litið á stöðu drengja og farið í samstarfsverkefni til að efla áhuga þeirra á námi og skoða hvernig við styðjum betur við umgjörðina í tengslum við þá. Eitt af því sem við komumst að þegar við bárum saman til að mynda Finnland og íslenska menntakerfið var að Finnar leggja mikla áherslu á snemmbæran stuðning, þ.e. ef það koma vísbendingar um að aðstoða þurfi við lestur þá er gripið strax inn í, ekki á síðustu árum grunnskólans heldur fyrr. Þannig að eitt leiðarljósið í nýrri menntastefnu er snemmbær stuðningur og koma fyrr að málum. Þetta er það sem við erum að gera.
Ég vil líka minna hv. þingmann á að síðustu niðurstöður PISA tóku mið af árangri í PISA-prófinu sem var tekið árið 2016. En um leið og ég kom í ráðuneytið settum við á laggirnar fagráð fyrir íslensku, fagráð fyrir stærðfræði og fagráð fyrir náttúrugreinar til þess að efla þær greinar, til að stuðla að því að árangurinn yrði betri. Ég er mjög bjartsýn á að mikið af þeim aðgerðum sem við höfum þegar farið í muni skila árangri, til að mynda að efla menntavísindasvið og auka áhugann. Við höfum sett hundruð milljóna í sértækar aðgerðir til að styðja við menntakerfið okkar. Við horfðum líka í átt til þess hvað Svíþjóð hefur verið að gera, en þar gekk nemendum ekki nægilega vel og Svíar fóru í að efla alla starfsþróun kennara. Það höfum við líka gert. Við erum að efla starfsþróun kennara er varðar stærðfræði, náttúrugreinar og svo líka lesskilning. Það verður mjög áhugavert að sjá hvað kemur út úr öllum þessum aðgerðum en ég er sannfærð um að þær eru allar til þess gerðar að efla menntakerfið okkar.