151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

um fundarstjórn.

[14:36]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég klóra mér örlítið í kollinum yfir því að tækifærið hafi ekki verið notað til að setja strax á dagskrá frumvarp Samfylkingarinnar um breytingar á sóttvarnalögum og láta reyna á það hvort málið gæti komist áfram. Það hefði verið hægt að koma því sem fyrst í nefnd eftir að mælt hefði verið fyrir því, ef því hefði yfirleitt verið hleypt á dagskrá. Nú veit ég ekki hvort forseti hefur einhvern pata af því að ríkisstjórnin áformi einhvers konar tvíburafrumvarp sem kynnt verður á blaðamannafundi í Hörpu á eftir, guð láti gott á vita. Vonandi er það svo vegna þess að nú erum við í þeim aðstæðum að við megum engan tíma missa, hver klukkutími skiptir máli í því að við tökum ákvörðun um þau skref sem eru nauðsynleg fyrir þessa þjóð.