151. löggjafarþing — 81. fundur,  20. apr. 2021.

breyting á ýmsum lögum um skatta og gjöld .

342. mál
[14:38]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það gleður mig mjög að þetta góða mál sé loksins komið á þennan stað og mér sýnist að allir hér séu á græna takkanum. Það hefur verið mikil samstaða innan þingsins meðan við höfum verið að vinna þetta ágæta mál. Kærar þakkir, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir framgöngu þína. En ég reikna með því að einn þingmaður í þessum sal sé sérstaklega ánægður, hv. þm. Willum Þór Þórsson, sem er upphafsmaður að þessu máli hér síðan 2013.