viðmið um nýgengi smita.
Virðulegi forseti. Ég verð að byrja á því að taka fram að hér er hv. þingmaður að bera undir mig mál sem strangt til tekið heyrir ekki undir mitt svið. En engu að síður skal ég bregðast við eftir bestu getu. Í fyrsta lagi segir hv. þingmaður að margir hafi kallað eftir hertari aðgerðum á landamærum. Ég segi við því: Já, og við því hefur verið brugðist. Ég get nefnt mörg dæmi um það og við höfum gert það jöfnum skrefum eftir því sem tilefni hefur þótt til. Ég get nefnt sem dæmi að við hófum að skima fyrir veirunni jafnvel hjá bólusettu fólki eða þeim sem sýndu fram á að hafa áður fengið sýkingu. Það er ekki langt síðan það var, en vottorð um bólusetningu voru t.d. tekin gild frá og með miðjum janúarmánuði. Ég gæti nefnt fleira. Við höfum fært okkur til tvöfaldrar skimunar og með sóttkví. Það var ekki alltaf þannig og við höfum boðað það að áhættumeta á landamærunum og það er nokkurra mánaða gömul umræða.
Hérna er sérstaklega spurt út í viðmið um nýgengi smita sem miðar við 1.000 smit fyrir 100.000 íbúa á 14 daga tímabili. Það er rangt hjá hv. þingmanni að engin lönd falli innan þeirra viðmiðunarmarka í Evrópu, Pólland, Holland, Frakkland og Ungverjaland eru allt lönd þar sem smitstaðan er eins og þar segir. Fyrir þessi lönd gildir þess vegna ófrávíkjanleg regla um að í fyrsta lagi verði ekki um að ræða nema nauðsynlegar ferðir þaðan, samkvæmt þessum tillögum, og í öðru lagi að það verði engar undanþágur frá sóttkvíarhótelinu. Fyrir hina sem hv. þingmaður vísar til gildir sú regla, samkvæmt þessum nýju tillögum, að menn eigi að meginreglu að fara á sóttkvíarhótel og þurfi undanþágu til þess að gera það ekki.