151. löggjafarþing — 82. fundur,  21. apr. 2021.

viðmið um nýgengi smita.

[13:08]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Blaðamannafundurinn hefur verið svo ruglingslegur að hæstv. ráðherra skilur hann ekki einu sinni sjálfur. Það er ekkert óeðlilegt við það að oddviti ríkisstjórnarinnar svari fyrir þetta mál. Hann kynnti líka aðra til sögunnar á fundinum í gær. Ekkert af þeim löndum sem hæstv. ráðherra talaði um gerir ráð fyrir fortakslausri skyldu vegna þess að þar er nýgengi smita á milli 750 og 1.000. Ef nýgengið er undir 750 má sækja um undanþágu þannig að eina landið í Evrópu þar sem er fortakslaus skylda er San Marínó, ef ég man rétt.

Ég spyr: Hvað í faraldrinum núna, þegar það eru 70, 80, 90 smit staðfest, gerir ráð fyrir að við förum í vægari aðgerðir en fyrir þremur vikum þegar það voru ekki nema sex eða sjö smit í landinu? Hvaða heimspeki liggur þar á bak við, hæstv. ráðherra?