151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

áhrif hagsmunahópa.

[13:02]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Í áhugaverðu viðtali við Stundina sagði forstöðumaður helstu stofnunar Stjórnarráðsins, Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, með leyfi forseta: „Íslandi er að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum“. Er hæstv. forsætisráðherra sammála þessari fullyrðingu seðlabankastjórans eða telur forsætisráðherrann seðlabankastjóra fara með rangt mál?