áhrif hagsmunahópa.
Virðulegi forseti. Það sem seðlabankastjóri sagði er nákvæmlega það sem pólitíkin snýst um. Hún snýst um almannahagsmuni, ekki sérhagsmuni. Þetta er búið að vera höfuðágreiningur Viðreisnar við ríkisstjórnina allt kjörtímabilið. Seðlabankastjóri, sem sagði sérhagsmunahópa hafa mikil völd, hann sagði það vera skýrt, myndi varla setja það fram ef hér léki allt í lyndi. Ríkisstjórninni hefur hins vegar algerlega mistekist í því að koma í veg fyrir að hagsmunahópar ráði hér svo miklu. Það má alveg segja að ríkisstjórnin hafi að vissu leyti veitt þessum hagsmunahópum skjól. Viðreisn hefur ítrekað lagt fram tillögur þar sem almannahagsmunum hefur verið ýtt framar sérhagsmunum, þar sem sérreglur gildi ekki í samkeppnismálum fyrir helstu hagsmunahópa og bakhjarla stjórnarflokkanna. Við höfum talað fyrir tímabundnum samningum sem veita ekki útgerðinni ævarandi einokunaraðgang að auðlindinni. Við höfum talað fyrir auknu gagnsæi varðandi aflaheimildir og eignarhlutdeild sjávarútvegsfyrirtækjanna, en það hefur ekki fengist afgreitt. Við höfum talað fyrir auknu gagnsæi varðandi verðmæti á afla fyrir almenning og sjómenn. Við höfum talað fyrir jöfnu vægi atkvæða, en þetta hefur ítrekað verið fellt eða ekki fengist afgreiðslu. Það segir sína sögu.