áhrif hagsmunahópa.
Herra forseti. Maður hlýtur að gera kröfu til þess að sanngirni sé gætt í þessari pontu og dæmin séu talin upp. Hv. þingmaður gerir ekkert með það að hér hafa einmitt verið sett lög um varnir gegn hagsmunaárekstrum. Ekki varð ég vör við að sú ríkisstjórn sem hún sat í síðast gerði neitt í þeim málum. Hv. þingmaður studdi það ekki í þessum sal þegar sett voru lög sem takmarka eignarhald á landi þannig að eignarhald á landi þjappist ekki saman á of fáar hendur. Það treysti flokkur Viðreisnar sér ekki til að styðja. Auðlindaákvæðið, sem allir þessir hagsmunaverðir leggjast gegn — það treystir flokkur Viðreisnar sér ekki til að styðja. Við skulum bara átta okkur á því að hér skiptir máli að nefna dæmi. Hins vegar held ég og ítreka að það væri áhugavert að fá nánari skýringar á þessu hjá seðlabankastjóra því að þetta er auðvitað mjög stór staðhæfing sem hann fer með og það skiptir máli að við ræðum þessi mál, hvernig hagsmunaaðilar beita sér og hvaða gagnsæi ríkir um það. Þar höfum við í ríkisstjórninni einmitt beitt okkur fyrir auknu gagnsæi, sem veitir ekki af í þessu litla samfélagi okkar.