upplýsingastefna ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Þegar beðið er um gögn frá Stjórnarráðinu gilda alveg skýrar reglur um hvaða gögn eru afhent. Plögg sem eru skilgreind sem vinnuskjöl, eru sem sagt nýtt til vinnu en fela ekki í sér ákvarðanir eða annað slíkt, eru oft og iðulega ekki afhent, af því að hv. þingmaður spyr um þetta tiltekna fylgiskjal sem var vinnuskjal við undirbúning sóttvarnaráðstafana.
Hv. þingmaður las hér upp úr svari forsætisráðuneytis að beðið hefði verið með að afhenda þetta skjal nema að betur athuguðu máli og spyr mig hvað mér finnist um þá skýringu eða hvort hún standist. Jú, það er rétt, það vinnulag er viðhaft að þegar beðið er um vinnuskjöl eru þau stundum afhent, en þó ekki alltaf og þá er farið yfir þau málefni sem þar eru. Þetta er mjög skýrt samkvæmt vinnureglum og upplýsingalögum og ávallt hægt að skjóta málum til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sem oft og iðulega er gert.
Ég vil minna hv. þingmann á að við breyttum upplýsingalögum fyrir ekki mjög löngu þar sem ráðuneytin hafa nú meiri frumkvæðisskyldu í því að birta gögn á alnetinu. Það hefur í raun orðið til þess að fjölmiðlar beina mjög mörgum spurningum til Stjórnarráðsins til að kanna nánar hvað þar er undir. Ég vil segja að ég lít á það sem mikið framfaraskref í raun og veru til að birta upplýsingar sem best og mjög í anda þess sem núverandi ríkisstjórn stendur fyrir, sem er að upplýsingar eigi að vera sem aðgengilegastar þeim sem eftir þeim leita, almenningi og fjölmiðlum.