upplýsingastefna ríkisstjórnarinnar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið en verð að viðurkenna að ég átta mig ekki alveg á einstökum atriðum í svari hæstv. ráðherra. Hæstv. ráðherra kýs að tala um umrætt plagg sem vinnuskjal. Þetta skjal hefur þá vísan í skýrslunni sem um ræðir að það sé fylgiskjal, og þá sem slíkt hluti af skýrslunni. Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki að þessi þáttur í skýringu hæstv. ráðherra sé að öllu leyti fullnægjandi. Ég tek eftir því að hæstv. ráðherra minnir á skref sem hafa verið stigin í átt til aukinnar upplýsingagjafar og aukins gagnsæis. Því ber að sjálfsögðu að fagna. En maður hlýtur að spyrja sig: Ef framkvæmdin er eins og við sjáum í þessu máli, þar sem mikilvægu skjali er ekki skilað inn með öðrum skjölum og borið við annars vegar að það sé vinnuskjal (Forseti hringir.) og hins vegar að það þyki ekki varlegt að birta það, (Forseti hringir.) þá spyr maður um gagnsemi slíkrar stefnu.