málefni atvinnulausra.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. En ég hef þetta frá fyrstu hendi, frá einstaklingi sem var neitað um að fara í þetta átak vegna þess að hann var á félagsbótum, vegna þess að hann féll ekki inn í rammann. Ég spyr mig: Hvers vegna í ósköpunum eiga þeir sem eru búnir að vera á félagsbótum að lifa á einhverjum rétt rúmum 150.000–160.000 kr., allt skert, allar tekjur, líka frá maka? Hvernig í ósköpunum getum við neitað þeim um að fara í þessa stöðu? Ég get ekki ímyndað mér að þeir séu margir. Þetta er einmitt hópurinn sem þarf á þessu að halda, þarf þetta pepp, þarf að komast út, geta farið að vinna og er búinn að vera lengi eða stutt á félagsbótum. Og ef þetta fólk er að reyna af fremsta megni að fá vinnu, í guðanna bænum, leyfið því að fá vinnu. Ekki segja nei við þetta fólk.