151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

frétt RÚV um Samherja.

[13:26]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir þetta svar og tel mikilsvert að fá það fram að menntamálaráðherrann í landinu styðji Ríkisútvarpið þegar um er að ræða slíkar árásir á starfsemi stofnunarinnar. Svona í framhaldi af þessu vegna þess að við heyrðum áðan í umræðum milli hæstv. forsætisráðherra og formanns Viðreisnar þar sem hæstv. forsætisráðherra talaði um hagsmunavörslu og hagsmunaverði, þá mátti jafnvel skilja það sem svo að hér væri um að ræða eðlilega hagsmunavörslu og eðlilega hagsmunaverði. Er hæstv. menntamálaráðherra sammála því að flokka megi framgöngu Samherja gagnvart Ríkisútvarpinu þannig og raunar hennar gamla vinnustað, Seðlabankanum, hvort hægt sé að lýsa þeirri framgöngu sem svo að þar sé um að ræða einvörðungu hagsmunavörslu? (Forsrh.: Ertu að leggja mér orð í munn?)