árásir Samherja á fjölmiðlafólk.
Forseti. Í lýðræðissamfélagi er mikilvægt að til staðar sé öflugt fjórða vald til að hafa eftirlit með og veita valdhöfum aðhald. Fjölmiðlar þurfa einnig að geta veitt einkageiranum aðhald þó að kannski mætti með réttu telja sjávarútvegsfyrirtæki á Íslandi til valdhafa, enda hefur þeim verið falið að passa upp á sameiginlega auðlind og auðlindarentu þjóðarinnar. Það er nokkuð ljóst að Samherja þykir fullkomlega eðlilegt að nota auðlindarentu þjóðarinnar í rógburðarherferð og mannorðsmorð á Helga Seljan sem nú stendur yfir, m.a. í margumtöluðum auglýsingamyndböndum á YouTube.
Ætlar hæstv. forsætisráðherra að láta það óátalið að verið sé að nota auðlindarentu þjóðarinnar í rógburðarherferð og mannorðsmorð á fjölmiðlamanni sem gerði það sem fagstétt hans á einmitt að gera og benti á spillingu Samherja? Telur ráðherra framferði Samherja gagnvart Helga Seljan eðlileg afskipti af fjölmiðlaumfjöllun? Hvaða aðgerða ætlar hæstv. ráðherra að grípa til svo að unnt sé að koma í veg fyrir að slíkar árásir á fjölmiðlafólk muni eiga sér stað aftur?