breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni frumkvæðið, en þingmaðurinn óskaði eftir umræðu um tilhögun skimunar á legháls- og brjóstakrabbameini og breytingum sem urðu á henni um áramótin. Þessar breytingar hafa átt sér mjög langan aðdraganda. Meginmarkmiðin með breyttu skipulagi skimana frá og með síðustu áramótum eru að færa skipulagið nær því sem mælt er með í alþjóðlegum skimunarleiðbeiningum og tryggja þar með enn frekara öryggi og gæði skimana hér á landi. Endurbætt skipulag skimana er jafnframt í samræmi við framtíðarsýn og meginmarkmið heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem Alþingi samþykkti 2019.
Í samræmi við krabbameinsáætlun setti landlæknir á fót þverfaglegt, óháð skimunarráð til að vinna tillögur að framtíðarskipulagi skimana fyrir krabbameinum og fyrirkomulagi þeirra á landsvísu. Í kjölfar þess að skimunarráð lauk vinnu sinni skilaði landlæknir tillögum til heilbrigðisráðherra um tilhögun, staðsetningu, stjórn og framkvæmd skimana sem byggði þá á áliti og faglegri ráðgjöf skimunarráðs. Það var mat skimunarráðs að tímabært væri að færa fyrirkomulag skimunar á Íslandi nær því skipulagi sem mælt er með í Evrópuleiðbeiningum um skimanir og féllu fram settar tillögur vel að innleiðingu íslenskrar krabbameinsáætlunar og heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Tillögur skimunarráðs eru í samræmi við fyrirkomulag skimana í Evrópu og á Norðurlöndum og þá kemur fram í áliti landlæknis að telja verði líklegra að verkefni sem snúa að skipulagi, utanumhaldi, lagaumgjörð og eftirliti verði auðveldari ef skimanir eru hluti hinnar almennu og opinberu heilbrigðisþjónustu.
Breytingar á fyrirkomulagi skimana fyrir leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini, sem tóku gildi síðastliðin áramót, eru í samræmi við álit og tillögur landlæknis og skipulagsráðs embættisins.
Með bréfi frá heilbrigðisráðuneytinu í júní 2020 voru embætti landlæknis, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, heilsugæslu um land allt, Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri formlega falin hlutverk og ábyrgð á breyttu skipulagi og framkvæmd skimana fyrir krabbameini frá og með síðustu áramótum.
Skipting ábyrgðar frá og með síðustu áramótum er eftirfarandi: Embætti landlæknis var falin heildaryfirsýn skimunar fyrir krabbameinum, og þar með talin ábyrgð á leiðbeiningum um skimanir. Auk þess er landlæknir ábyrgur fyrir því að sett verði árangursviðmið og gæðavísar um skimanir og hefur eftirlit með árangri og framkvæmd skimunar. Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins var falinn rekstur og ábyrgð á Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, en í því hlutverki felst m.a. að bera ábyrgð á því að leiðbeiningum um skimun sem embætti landlæknis gefur út sé fylgt á landsvísu. Þetta felur m.a. í sér skipulag skimunar og samhæfingu hennar í samráði við þá aðila sem koma að skipulagðri, lýðgrundaðri skimun. Stöðin ber ábyrgð á boðun í skimun og tryggir að konur sem óska eftir að taka þátt í skimun fái tækifæri til þess. Hún tryggir að konur fái upplýsingar um skimun, niðurstöðu skimunar og upplýsingar um eftirfylgni. Heilsugæslu um land allt hefur verið falið að taka sýni vegna skimunar fyrir krabbameini í leghálsi og fellur sú heilbrigðisþjónusta vel að starfsemi hennar. Landspítala var falin ábyrgð á framkvæmd skimunar fyrir brjóstakrabbameini sem og sérskoðun brjósta og legháls fyrir landið allt. Landspítalanum er falið að eiga samstarf við Sjúkrahúsið á Akureyri um framkvæmd og hafa forgöngu um samvinnu milli forstjóra annarra heilbrigðisstofnana um fyrirkomulag á skimun fyrir brjóstakrabbameini og sérskoðun brjósta með það að markmiði að ná til kvenna úti um land.
Frá árinu 2017 hefur Landspítalinn séð um sérskoðanir brjósta og frá og með síðustu áramótum tók spítalinn við skimun fyrir brjóstakrabbameini og leghálsspeglun, en skimun fyrir brjóstakrabbameini á höfuðborgarsvæðinu hefur verið flutt úr Skógarhlíð til Eiríksstaða á Eiríksgötu 5. Á Akureyri er skimun fyrir brjóstakrabbameini á Sjúkrahúsinu á Akureyri eins og verið hefur. Landspítalinn mun því sjá um skimun á landsbyggðinni í samstarfi við Sjúkrahúsið á Akureyri með áþekku fyrirkomulagi og var fyrir breytingar.
Varðandi leghálsskimun á landsbyggðinni hafa ljósmæður og hjúkrunarfræðingar á heilsugæslustöðvum séð um sýnatöku vegna skimunar fyrir leghálskrabbameini frá árinu 2015 og fengið til þess sérstaka þjálfun, en nú hafa ljósmæður og hjúkrunarfræðingar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins einnig fengið þjálfun við að taka leghálssýni. Framkvæmdir við töku leghálssýna hefur því einungis breyst á höfuðborgarsvæðinu. Aðkoma kvensjúkdómalækna á stofum að sýnatöku vegna skimunar fyrir krabbameini í leghálsi er óbreytt frá því sem verið hefur, þ.e. kvensjúkdómalæknar geta tekið sýni samkvæmt skimunarleiðbeiningum og sent til greiningar.
Í dag fá konur niðurstöður úr skimun á island.is en það er sama fyrirkomulag og var viðhaft fram að síðustu áramótum. Síðar á árinu munu niðurstöður verða aðgengilegar á heilsuvera.is, en þar geta konur séð niðurstöður og hvenær áætlað er að næsta skimun verði samkvæmt leiðbeiningum frá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana, sem byggist á skimunarleiðbeiningum landlæknis.