breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa þörfu umræðu um það hitamál sem þessar skimanir hafa verið í vetur. Nýverið kom fram að enn þá er sex vikna lágmarksbið eftir niðurstöðum greiningar á sýnum frá því að þau voru tekin. Það er þvert á ítrekaðar fullyrðingar fyrr á árinu þar sem því var haldið fram að greiningarferli myndi taka tvær til þrjár vikur.
Síðustu daga hafa okkur borist fréttir af því að konum sem fóru í skimun í nóvember í fyrra séu núna fyrst að berast niðurstöður. Niðurstaðan felur jafnvel í sér að viðkomandi kona þarf enn á frekari rannsóknum að halda. Herra forseti. Við erum því að tala um allt að sex mánaða bið í óvissunni. Allan þennan tíma hafa konur beðið í óvissu og ótta og enga hugmynd haft um hvenær þær frétti af niðurstöðunum. Þær hafa jafnvel frétt af því í fjölmiðlum að lífsýni þeirra sé að finna í pappakössum í húsakynnum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Hamraborg. Hvað mundi Persónuvernd segja við þessu? Nú þegar þær frétta loksins af því að þær þurfi að fara í frekari rannsóknir eru þær eðlilega slegnar kvíða og reiði. Þeim finnst þær hunsaðar og afskiptar. Ofan á þetta segir í samningnum við danska rannsóknaraðila að geyma eigi eðlileg sýni í sex ár. Hér á landi hafa sýnin verið geymd í tíu ár. Ég spyr: Er þessi breyting í samræmi við lög um lífsýnasöfn og lög um sjúklinga? Hversu mikið klúður er unnt að afbera í þessum málum?
Herra forseti. Nei, þessa starfsemi á að sjálfsögðu að starfrækja hér á landi. Hér er til staðar þekking, tæki og allur annar búnaður. Þannig yrði þetta allt í senn ódýrara en umfram allt öruggara en það ferli sem nú hefur verið viðhaft.
Ég spyr einnig, herra forseti: Hvar værum við stödd varðandi umræðu um þetta mál ef ekki hefði komið til hin kraftmikla barátta þeirra kvenna sem gengið hefur undir kjörorðinu Aðför að heilsu kvenna? Hvar værum við þá stödd?