breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda kærlega fyrir þessa umræðu sem verið hefur fróðleg og upplýsandi. Ég tek undir áhyggjuorð þeirra þúsunda kvenna sem skrifuðu undir áskorun til hæstv. heilbrigðisráðherra og ég tek undir áhyggjur málshefjanda. Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með yfirlýsingum stjórnvalda varðandi þessar breytingar á heilbrigðisþjónustu kvenna, sem voru að sögn í undirbúningi í a.m.k. tvö ár en tóku gildi um áramót með ófullnægjandi hætti, eins og margsinnis hefur komið fram. Í ræðu sinni dreifði hæstv. heilbrigðisráðherra ábyrgðinni á embætti landlæknis, heilsugæslu og Landspítala, en ábyrgð á ófullnægjandi undirbúningi er hæstv. ráðherra.
Eftir að búið var að færa alla þessa heilbrigðisþjónustu frá Krabbameinsfélaginu og til heilsugæslu, sem ekki allir hafa fullnægjandi aðgang að, til Landspítala að hluta og til danskrar rannsóknarstofu að hluta, koma fram æ fleiri konur sem eru í fullkominni óvissu um afdrif leghálssýna sem þeim tilheyra, m.a. konur sem áður hafa greinst með frumubreytingar og hafa eftir atvikum einnig farið í keiluskurð með tilheyrandi eftirfylgni. Þær eru nú í óvissu. Að fjölmargar konur séu ekki búnar að fá nein svör nánast allt þetta ár, eftir sýnatökur í janúar eða febrúar, er afleit þjónusta í boði ríkisstjórnarinnar sem getur ekki skorast undan ábyrgð. Að svör berist seint og illa til kvenna sem bíða niðurstöðu leiðir til mikillar vanlíðunar hjá þessum konum, eins og glöggt má sjá á umræðu í stórum hópi kvenna á samfélagsmiðlum sem ræða þar áhyggjur sínar við kynsystur sínar.
Herra forseti. Staðan var hæstv. heilbrigðisráðherra ljós í byrjun þessa árs, en nú í lok apríl er ekki enn búið að klára þessa yfirfærslu með fullnægjandi hætti, og er það miður.