151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.

[14:15]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þann 2. mars sl. óskaði ég, ásamt 25 öðrum þingmönnum, eftir að hæstv. heilbrigðisráðherra yrði falið að vinna skýrslu um breytingar á skipulagi og framkvæmd skimunar fyrir krabbameini í leghálsi. Það gerði ég í kjölfar þungrar gagnrýni frá konum og frá læknum og heilbrigðisstarfsfólki. Afleiðingin af þessum breytingum er óöryggi gagnvart kerfinu. Það er óboðleg staða. Ráðherra hefur samkvæmt þingsköpum tíu vikur til að skila slíkri skýrslu til þingsins, en á morgun verða liðnar átta vikur. Enn hefur lítið heyrst og ekkert af þessari vinnu. Óskað var eftir upplýsingum frá forseta þingsins þann 14. apríl en svör um stöðu mála hafa ekki borist. Ástæða þess að ég nefni hérna tímamörkin er að í skýrslubeiðninni hefur farið fram á, með leyfi forseta:

„… að skýrsla um ofangreinda þætti verði unnin af óháðum aðila. Æskilegt er að samráð verði haft við þingflokka um þann óháða aðila sem fenginn verður til starfans.“

En nú, þegar tvær vikur eru þar til að ráðherra á að flytja þinginu skýrsluna, hefur ekkert heyrst frá hæstv. heilbrigðisráðherra um hvaða aðili verði fenginn til þess. Þetta held ég að sé í samræmi við annan undirbúning málsins eða þessara breytinga af hálfu stjórnvalda, það vantar allt samtal. Það vantar samtal við konur sem eiga allt þessari þjónustu að þakka og það vantar samtal við kerfið sjálft.

Markmiðið með skýrslubeiðninni var að fá fram svör við brýnum spurningum þannig að upplýsingar fáist fram um það t.d. hver aðdragandinn var og hvaða rök voru að baki. Það eru mér vonbrigði að sjá núna þegar átta vikur eru liðnar, engin sérstök merki þess að vanda eigi til þessarar vinnu og leggja fram faglega unna úttekt á málinu. Úttekt og heiðarlegt samtal í kjölfarið verður að fá að eiga sér stað og Alþingi hefur reyndar samþykkt að svo skuli vera.

Virðulegi forseti. Konur eiga betra skilið en þetta. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er ætlunin að vinna að þessari skýrslu í samræmi við skýran vilja þingsins?