breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.
Herra forseti. Það er ljóst að ríkt hefur ófremdarástand í einum af mikilvægustu þáttum heilbrigðismála á þessu kjörtímabili, sem eru breytingar á skimun fyrir legháls- og brjóstakrabbameini. Ástæðan fyrir ákvörðuninni um að breyta ferlinu hefur verið óskýr. Framkvæmdin hefur verið klúðursleg, illa skipulögð og umfram allt illa kynnt fyrir konum, sem hefur valdið óöryggi meðal þeirra og vantrausti þeirra á kerfið sem á að þjóna konum og þeirra heilbrigði. Þetta klúður hefur reynst afdrifaríkt og nú er svo komið að aðgerðahópur rúmlega 14.000 kvenna og aðstandenda þeirra sem hófu undirskriftasöfnun fyrir rúmum tveimur mánuðum, sendi frá sér fréttatilkynningu í dag vegna þess að konur voru enn ekki búnar að fá niðurstöðu í rannsóknir sínar á þessu ári. Hópurinn segir að ferli greininga og miðlun niðurstaða úr skimun fyrir leghálskrabbameini sé í molum. Engin skipuleg upplýsingagjöf sé til kvenna.
Herra forseti. Hvers vegna var ákveðið að semja við rannsóknastofu í Danmörku um greiningu leghálssýna sem tekin eru hér á landi þegar hægt var að framkvæma þær rannsóknir hér, sem samkvæmt sérfræðingum hefði þýtt hraðara og markvissara ferli? Ef um væri að ræða að kostnaður við rannsóknir sé lægri í Danmörku, líkt og heilbrigðisráðuneytið hefur haldið fram, þá hafa engin skýr gögn um lægri kostnað verið lögð fram. Margir mánuðir hafa liðið án þess að leghálsskimanir og ferlið við þær hafi verið skýrt almennilega út fyrir konum, hvað þá fyrir fagaðilum.
Herra forseti. Það er óboðlegt að konur séu ekki enn búnar að fá niðurstöður í sínar persónulegu leghálsskimanir mörgum mánuðum eftir að sýni voru tekin. Óvissan, hræðslan og vantraustið býr til vanlíðan og ótta, sem hefði svo auðveldlega verið hægt að forðast með skipulögðum og skýrum vinnubrögðum heilbrigðisráðuneytisins. Ef tilgangurinn var sá að færa skipulagið nær alþjóðlegum stöðlum, hvers vegna var þá ekki búið að samræma og skipuleggja ferlið svo skimunin og miðlun þeirra myndi ganga hratt og örugglega fyrir sig þegar farið var af stað í það að senda fyrstu sýnin til Danmerkur?
Herra forseti. Nú er staðan sú að enn þá eru konur sem ekki hafa fengið endanlegar niðurstöður sem fóru þó upphaflega í skimun í nóvember á síðasta ári. Aðrar hafa jafnvel fengið þá niðurstöðu að þær þurfi að fara í frekari rannsóknir eftir nærri sex mánaða ferli í óvissu og ótta. Það getur verið allt að fjögurra vikna bið (Forseti hringir.) eftir að komast í þær rannsóknir. Slík framkvæmd er með öllu óboðleg, bæði konum og aðstandendum þeirra, sem og læknum þeirra, nú í sumarbyrjun. (Forseti hringir.) Núverandi staða í þessum þætti heilsufarsmála kvenna er með öllu óviðunandi (Forseti hringir.) og tryggir hvorki öryggi né gæði sem konur og aðstandendur þeirra eiga skilið.