151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.

[14:33]
Horfa

Olga Margrét Cilia (P):

Forseti. Sjúkdómar og áhrif sjúkdóma eða lyfja á leghafandi fólk hafa ekki átt upp á pallborðið hjá læknasamfélaginu. Rannsóknir á sjúkdómum og áhrifum lyfja eru miðaðar við karlkyns líkama og eins og svo margt annað byggjast nútímalæknavísindi á rannsóknum gerðum af körlum um karla. Nýjasta dæmið er að þegar bólusetning við Covid-19 virtist valda blóðtappa var strax hætt að nota bólusetningarefnið, þar til annað kom í ljós, á meðan skrifað hefur verið upp á getnaðarvarnapilluna fyrir leghafandi fólk allt niður í 12 ára aldur þó að ljóst sé að gríðarleg blóðtappahætta sé af inntöku lyfjanna. Ástæðan fyrir því að læknavísindin vita ekki af hverju pillan hefur þessi áhrif á ungar konur er kannski allra helst að þau hafa ekki áhuga á að vita það. Vanvirðing gagnvart leghafandi fólki er svo gríðarleg að mjög margar frásagnir eru til þar sem leghafandi fólk er sent á milli lækna og sagt að það sé með hysteríu eða ímyndunarveiki og svo kemur í ljós síðar meir að um er að ræða vefjagigt, langvarandi streitu eða jafnvel krabbamein.

Hvað ætlar heilbrigðisráðuneytið að gera til þess að tryggja virðingu heilbrigðiskerfisins gagnvart leghafandi fólki og hvernig ætlar ráðuneytið að byggja upp traust leghafandi fólks gagnvart heilbrigðiskerfinu til lengri tíma?