breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.
Herra forseti. Ég þakka málshefjanda, hv. þm. Líneik Önnu Sævarsdóttur, kærlega fyrir að opna á þetta mál. Á þeim stutta tíma sem ég hef langar mig til að fókusera á raunverulega ástæðu fyrir því að hin margnefndu sýni eru flutt til Danmerkur og af hverju svo margar mismunandi ástæður hafa verið gefnar upp fyrir þeim flutningi. Það vill þannig til að þegar ég var að undirbúa mig fékk ég upp á Facebook-síðu mína glærur frá flokki hæstv. heilbrigðisráðherra frá því í febrúar þar sem útskýrt er frá sjónarhorni hæstv. ráðherra, eða flokks hennar, VG, markmiðið með flutningi krabbameinsskoðunar til heilsugæslunnar og markmiðið með flutningi sýnanna til Danmerkur. Þar kemur m.a. fram að ef til þess kæmi að greiningargetan yrði nægilega góð hér á landi kynni að vera að teknar yrðu nýjar ákvarðanir. Mér fannst það sannarlega áhugavert. Frá mínum bæjardyrum séð eru þetta enn ein rökin sem tínd hafa verið til. Rök heilbrigðisyfirvalda fyrir því að flytja sýnin til Danmerkur hafa verið að álag sé á Landspítala vegna Covid-19, skortur sé á vilja Landspítalans til að taka við rannsóknunum og fyrirséð fækkun sýna til greiningar hér á litla Íslandi sem geri það að verkum að ekki sé hægt að vinna verkið hér. Þeim fullyrðingum hefur öllum verið mótmælt af fagaðilum hér á landi, ekki síst fagfólki innan Landspítalans. Svo er það kostnaðaraukinn. Það hefur ekki verið stutt gögnum og því ekki heldur svarað hvers vegna farið var fram hjá útboðsskyldu, ef svo má segja. Það er eiginlega sama hvernig maður reiknar, þetta er alltaf fjarri fjárhæðum sem alla jafna eru taldar marka útboðsskyldu í kaupum á opinberri þjónustu. Þetta eru því spurningar sem hefur ekki verið svarað. Það er margt undir; heilsa kvenna og þessi tilfinning fyrir því að af einhverri ástæðu hafi verið lagt af stað upp í óvissuferð með heilbrigði kvenna. Það eitt og sér er auðvitað algjörlega óásættanlegt. (Forseti hringir.) Hitt er líka slæmt, að traust kvenna til þjónustunnar (Forseti hringir.) hefur beðið skaða af. Það eitt og sér er virkilegt áhyggjuefni, jafnvel þó að staðreyndin sé sú (Forseti hringir.) að undirliggjandi ástæða þess að spurningum hefur ekki verið svarað er einhver önnur en þær að svörin (Forseti hringir.) séu ekki til.