151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.

[14:37]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða skimanir fyrir leghálskrabbameini. Læknar hafa kallað eftir því að fá að sjá upplýsingar um samninga við sjúkrahúsið í Hvidovre og gagnrýnt að ekki hafi verið ráðist í útboð á þessari framkvæmd. Ef þessi tilhögun átti að spara peninga er löngu ljóst að sá hugsanlegi ávinningur er horfinn enda þurfti að endurgreina fjölda sýna strax í upphafi samningsins. Þá þurfa stjórnvöld að gera hreint fyrir sínum dyrum og útskýra hvers vegna ákveðið var að færa þessi verkefni frá Krabbameinsfélaginu. Hafði það áhrif á að útlit er fyrir færri skimanir þegar HPV-bólusettur árgangur kemst á skimunaraldur? Hafði það áhrif að upp komst um rangar greiningar á vegum Krabbameinsfélagsins? Lágu upplýsingar um röngu greiningarnar fyrir þegar stjórnvöld tóku ákvörðun um að færa skimanir frá Krabbameinsfélaginu?

Við verðum að átta okkur á því að núna í miðju Covid er staðreyndin sú, einhvers staðar sá ég tölur um það, að krabbameinstilfellum hefur fækkað niður í 50% í ákveðnum krabbameinstegundum. Það segir okkur ekki að það hafi skeð kraftaverk, að það séu 50% færri sem greinast, heldur er það vegna þess að staðan er sú að það fá ekki eins margir greiningar og áður. Það eitt og sér á að segja okkur það að við þurfum að taka þessi mál föstum tökum og við þurfum að greina þessi sýni eins fljótt og hægt er. Það á ekki að vera nokkur bið á og við eigum að sjá til þess að þetta sé allt uppi á yfirborðinu og gert strax.