151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

breytingar á fyrirkomulagi skimunar fyrir legháls- og brjóstakrabbameini.

[14:42]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir góða umræðu hér. Ég ætla að reyna að svara þeim fyrirspurnum sem borist hafa í þessari lotu. Ég byrja á endanum þar sem hv. þingmaður og málshefjandi spyr hvort Landspítalinn gæti tekið þessar rannsóknir að sér. Ég hef áður fjallað um það í ræðustól Alþingis að í fyrrasumar kom svar frá Landspítalanum um að hann sæktist ekki eftir verkefninu. Í ljósi þess þurfti að kanna aðrar leiðir og samningurinn við Hvidovre varð niðurstaða þeirrar könnunar.

Síðan komu fram þær vangaveltur og athugasemdir frá ýmsum læknum og öðrum á Landspítala sem vísað hefur verið til í umræðunni. Þess vegna þótti mér rétt að kanna hvort afstaða spítalans hefði breyst. Svar barst við því erindi og núna er það til umsagnar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Ég býst við að fá svör frá heilsugæslunni í þessari viku. Það kynni því að koma til þess að rétt væri að þjónustan væri innt af hendi hér.

Núna er staðan orðin þannig að svar berst innan sex vikna. Markmiðið með samningnum er þrjár til fjórar vikur. Kúfurinn sem við fengum í arf við millifærsluna var 3.300 sýni. Þau hafa verið send utan og svör við þeim hafa borist. En enn þá eru dæmi um svör sem ekki hafa borist, þ.e. vegna endurinnköllunar. Það þarf auðvitað að laga og við stefnum að því að ná réttum takti í þessu.

Hér er líka spurt um ristilskimanir. Við eigum fund með Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins síðar í vikunni um þau mál því að við eigum frátekið fjármagn til að hefja undirbúning að því. Við umræðuna hér var fullyrt (Forseti hringir.) að dregið hefði úr þátttöku í kvenna í skimun. Það hefur ekki verið stutt neinum tölum enda höfum við engin gögn um það. Miðstöð skimana (Forseti hringir.) mun sjá um að halda utan um þau gögn. Þetta er, eins og fram hefur komið, stórt lýðheilsumál og við viljum sjá (Forseti hringir.) umtalsvert aukna þátttöku. En þetta var það sem við höfðum mestar áhyggjur af og Krabbameinsfélagið hafði það líka áður en tekin var ákvörðun um að (Forseti hringir.) flytja verkefni til opinberra aðila.