151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:45]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eftir að Ísland hafði aftur orðið grænt samkvæmt litakorti Sóttvarnastofnunar Evrópu, eitt Evrópulanda, hafa nú á síðustu vikum blossað upp tvö hópsmit. Raðgreining hefur sýnt að um breska afbrigðið er að ræða og hægt er að rekja þessi hópsmit til leka á landamærum. Það er mikilvægt að taka fram að hópsmitin eru ekki tengd þeim afléttingum sem áttu sér stað fyrir tíu dögum heldur má rekja þau til atburða sem gerðust fyrir síðustu mánaðamót. Viðbrögðin hafa verið þau sömu og áður, þ.e. sýnataka, einangrun, smitrakning og sóttkví fyrir þau sem grunur er á að hafi verið útsett fyrir smiti, en jafnframt skimaði Íslensk erfðagreining fyrir smiti í samfélaginu í síðustu viku til að finna hugsanlega einkennalausa einstaklinga en ekkert jákvætt sýni greindist.

Nú berast okkur fregnir af nokkrum Covid-sýkingum í Ölfusi svo gera má ráð fyrir að veiran sé úti í samfélaginu. Í dag er óvíst hvort hægt verður að ná utan um þessi hópsmit með staðbundnum aðgerðum en samkvæmt covid.is er samtals 351 einstaklingur í sóttkví, 1.100 í svokallaðri skimunarsóttkví, 169 einstaklingar í einangrun og fimm inniliggjandi á sjúkrahúsi, samkvæmt tölum í morgun.

Varðandi bólusetningar er óhætt að segja að staða þeirra sé góð og þær ganga vel. Á föstudaginn 23. apríl höfðu tæplega 81.000 einstaklingar fengið fyrsta eða báða skammta bóluefnis gegn Covid-19 og eru bólusetningar farnar að snerta tæpan þriðjung þess hóps sem fyrirhugað er að bólusetja hér á landi. Fullbólusettir voru á föstudaginn 32.609 einstaklingar, en stærsta vikan í bólusetningu til þessa er áætluð í þessari viku þegar gefnir verða rúmlega 25.000 skammtar af bóluefni, og þar af fá 23.000 einstaklingar fyrri bólusetningu.

Áætlanir gera ráð fyrir að í byrjun maí hafi allir sem eru yfir 60 ára fengið a.m.k. fyrri skammt bóluefnis gegn Covid-19 og 50 ára og eldri í byrjun júní. Stefnt er að langþráðu marki um að allir yfir 16 ára hafi fengið fyrri bólusetningu í byrjun júlí.

Staðfestar afhendingaráætlanir gera ráð fyrir að í þessari viku berist um 32.000 bóluefnaskammtar til landsins sem verða notaðar í næstu viku og stefnir því í enn stærri viku bólusetninga hér á landi í næstu viku.

Vegna þess að vel tókst að ná utan um hópsmit sem fóru af stað í lok mars með hörðum aðgerðum í þrjár vikur var ákveðið að fenginni tillögu sóttvarnalæknis að létta á takmörkunum frá og með 15. apríl síðastliðnum. Þá voru fjöldatakmarkanir rýmkaðar, íþróttastarfsemi var leyfð og sund- og líkamsræktarstöðvar opnaðar. Þann 21. apríl tóku gildi smávægilegar breytingar á innanlandstakmörkunum til samræmingar og lítils háttar afléttingar.

Eins og kunnugt er kynnti ríkisstjórnin í síðustu viku áætlun um áframhaldandi afléttingu takmarkana innan lands í takt við það að bólusetningum fjölgar. Áætlað er að allir 16 ára og eldri hafi fengið a.m.k. eina bólusetningu 1. júlí, eins og fram hefur komið, auk þess sem áhættuhópar verða fullbólusettir þá og þá verði hægt að létta á takmörkunum innan lands í síðari hluta júní eða nálægt þeim mánaðamótum þegar 75% þeirra sem fyrirhugað er að bólusetja hafa fengið fyrri eða báða skammta bóluefnis gegn Covid-19.

Á morgun tekur gildi ný reglugerð um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum Íslands vegna Covid-19, en helsta breytingin á landamærum verður sú að allir sem koma frá ríkjum eða dvalist hafa í ríkjum þar sem 14 daga nýgengi smita er yfir 500 á hverja 100.000 íbúa þurfa að fara í sóttkví í sóttvarnahúsi en komi farþega frá ríki þar sem nýgengi er milli 500 og 700 er unnt að sækja um undanþágur frá dvöl í sóttvarnahúsi, að því tilskildu að viðkomandi geti sætt heimasóttkví samkvæmt reglum og viðmiðum þar um. Ekki verða veittar undanþágur til þeirra sem koma frá ríkjum þar sem nýgengi er yfir 700 nema veigamiklar ástæður mæli með því, svo sem fötlun, þroski eða aðrar sambærilegar aðstæður umsækjenda. Eftir sem áður eru þau sem hafa vottorð um bólusetningu eða fyrri sýkingu undanþegin sóttkví eftir komuna til landsins en þurfa að fara í eina sýnatöku á landamærum.

Í stuttu máli sagt má segja að nú sé faraldurinn á mjög viðkvæmu stigi og áhersla okkar liggur öll á landamærum og að reglum um sóttkví sé fylgt. Mín von er sú að hægt sé að ráða niðurlögum hópsmita með staðbundnum aðgerðum og að ekki þurfi að grípa til hertra aðgerða innan lands. Bólusetningum vindur fram af krafti og ég held að allir þingmenn geti tekið undir þakkir til heilsugæslunnar fyrir öflugt og myndarlegt utanumhald utan um þá framkvæmd. Því vindur öllu saman vel fram og á að hjálpa okkur við það þegar við munum geta slakað á ráðstöfunum innan lands, skref fyrir skref.