covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir framsöguna. Eins og alþjóð veit var töluvert havarí í liðinni viku, síðastliðinn miðvikudag og fram á aðfaranótt fimmtudags, þegar breytingar á sóttvarnalögum voru samþykktar með minni hluta atkvæða eftir að nefndarálit hafði komið inn í þingið frá hv. velferðarnefnd þar sem minni hluti nefndarinnar skrifaði undir þá leið sem farin var. Mig langar til að biðja hæstv. heilbrigðisráðherra að fara yfir það í stuttu máli, ef tækifæri gefst til á eftir, með hvaða hætti þær tvær reglugerðir sem lagðar voru fram til kynningar á málinu — því að auðvitað voru frumvarpið og síðan reglugerðirnar tvær sem lagðar voru fram til kynningar, annars vegar frá heilbrigðisráðherra og hins vegar frá dómsmálaráðherra, virt heildstætt í nefndinni. Ráðherrann leiðréttir mig ef ég fer með fleipur en mér sýnist á öllu að bara reglugerð heilbrigðisráðherra hafi verið birt. Ég fann hið minnsta ekki reglugerð dómsmálaráðherra í fljótu bragði. Því verð ég að spyrja hvort málið gangi upp með þeim hætti, ef ég misles ekki heimasíðu Stjórnarráðsins, því að það var auðvitað þeirrar gerðar að efnisatriðin sem voru í reglugerð dómsmálaráðherra hljóta að hafa afgerandi áhrif á málið í heild. Nú sé ég að framsögumaður minnihlutaálitsins, hv. varaformaður velferðarnefndar, situr hér í salnum og hann getur kannski leiðrétt mig ef þetta er mislestur.
Til viðbótar þessu langar mig að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra hvort ekki sé ástæða til þess, þó að hv. velferðarnefnd hafi fengið að sjá bóluefnasamninganna á sínum tíma, að leyfa þingheimi að sjá þá nú þegar liggur fyrir að Evrópusambandið er að hefja málarekstur á hendur AstraZeneca á grundvelli þeirra.