151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[14:53]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Í raun og veru er það svo, af því að hv. þingmaður spyr sérstaklega um samspil þessara tveggja reglugerða, að það er algerlega hægt að beita þeim sjálfstætt og þær hanga ekki nauðsynlega saman. En af því að hv. þingmaður spyr líka sérstaklega um það að þetta var sannarlega kynnt sem pakki fyrir nefndinni þá er það svo að nefndin dró það sérstaklega fram í umfjöllun sinni, þ.e. sá hluti nefndarinnar sem skrifaði undir nefndarálitið, að þær tölur sem nefndar voru í greinargerð með frumvarpinu væru til dæmis. Það var litið svo á að það væri til að styrkja þá meginhugsun að sóttvarnalæknir hefði nokkurt svigrúm í þeim tillögum sem hann gæti síðan gert á grundvelli laganna til bæði mín og dómsmálaráðherra eftir atvikum.

Hv. þingmaður spyr líka sérstaklega um samninga og birtingu þeirra og ef ég kann málið rétt þá hafa samningarnir verið birtir velferðarnefnd í trúnaði. Ég vona að fólk geti gefið merki ef ég er ekki að fara með rétt mál. Væntanlega snýst sá trúnaður fyrst og fremst um verð eða aðrar slíkar upplýsingar, tel ég vera. En mér skilst að það sé samt sem áður þannig að samningurinn við AstraZeneca hafi til að mynda nú þegar verið birtur á vef Evrópusambandsins. Ég held að það hljóti að vera til marks um að talið sé óhætt að birta a.m.k. þá samninga sem eru við þann aðila.