covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Eins og kom fram í máli mínu er það ekki verkefni mitt hér að svara fyrir reglugerð dómsmálaráðherra en reglugerð sem ég undirritaði og er þegar birt tekur gildi á miðnætti og lýtur að skyldusóttkví, eins og kom fram í framsögu minni. Annaðhvort talaði ég ekki nógu skýrt eða hv. þingmaður misheyrði mín orð þegar ég talaði um birtingu á samningum. Ég talaði um að samningur við AstraZeneca hefði verið birtur á vef Evrópusambandsins og ég sagði að ég teldi ekkert því til fyrirstöðu að birta þann samning þar með. En það er mikilvægt að halda því til haga að réttur þingnefndar til aðgangs að gögnum er mun ríkari en annarra.