151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:01]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Í þeim tölum og áætlunum sem við höfum verið að gera höfum við að jafnaði miðað við 16 ára og eldri. Það gefur okkur þessa tölu, sem er auðvitað alltaf plús/mínus eitthvað, sem eru um 280.000 manns sem boðin verður bólusetning. Það hefur alltaf verið það viðmið sem við höfum haft. Það byggir að hluta til á markaðsleyfi bóluefnanna, þ.e. fyrir hve ungt fólk er heimilt að nota þessi efni. Nú standa yfir rannsóknir fyrir börn og fyrir ungmenni varðandi bóluefni og ég heyri barnalækna og barnasmitsjúkdómalækna tala um að þau telji meiri líkur en minni á því að það skref verði stigið að bóluefni verði boðið börnum, a.m.k. þeim eldri í hópi barna, en enn sem komið er getum við ekki gert neinar áætlanir miðað við það vegna þess að við höfum ekki nægileg gögn í höndunum. Rannsóknir standa yfir og við vitum ekki nákvæmlega hvernig þeim kemur til með að vinda fram. En það gerir það að verkum að þó að við séum að tala um afléttingar hér um mitt sumar — eins og hv. þingmaður nefnir þurfum við áfram að vera með okkar persónubundnu smitvarnir og passa upp á hópamyndanir og fjarlægðir og allt það sem við kunnum svo óþægilega vel — kann að vera að við eigum eftir sem áður eftir að fara í bólusetningarlotur með okkar yngsta fólk, mögulega þá með haustinu. Við höfum fest kaup á nægilegu bóluefni til að geta tekið á slíku verkefni ef það verður niðurstaðan.