151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:03]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra þessi svör. Ég vil beina því til hæstv. ráðherra og undirmanna hennar, þ.e. landlæknis og sóttvarnalæknis, að það þurfi á einhverjum tímapunkti að hefja umræðu um börn og bóluefni. Sú sem hér stendur mun að sjálfsögðu þiggja bólusetningu þegar henni býðst hún, en ég verð að viðurkenna að sem móður finnst mér það öllu erfiðara skref að taka ákvörðun um hvort ég eigi að segja börnunum mínum að þiggja bólusetningu á bóluefni sem við vitum að hefur einungis verið rannsakað í stuttan tíma og við getum ekki vitað hver langtímaáhrifin eru. Í upphafi þessa faraldurs, áður en við sáum breska afbrigðið sem lagðist á börn, batt ég miklar vonir við að bóluefni þyrfti bara að gefa fullorðnum einstaklingum og helst yfir ákveðnum aldri. Þá langar mig að beina þeirri spurningu til hæstv. ráðherra, og spyr aftur á persónulegum nótum sem móðir þar sem ég á rúmlega tvítuga dóttur sem hefur þegið fyrstu sprautuna frá AstraZeneca: Er skynsamlegt að ungar stúlkur taki seinni bólusetningu frá AstraZeneca eða eru komnar áætlanir um önnur bóluefni fyrir þann hóp?