covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég veit að þessi spurning brennur á mörgum, en það má segja að það hjálpi okkur við að svara þessari spurningu að gert er ráð fyrir að heilir þrír mánuðir líði milli fyrri og síðari bólusetningar með AstraZenea. Áður en umræðan hófst, um að mögulega væri bóluefnið óráðlegt fyrir yngri hópa, og sérstaklega fyrir ungar konur, var allnokkur hópur heilbrigðisstarfsfólks, og þá sérstaklega ungar konur, sem fékk þetta bóluefni. Mér er kunnugt um að sums staðar er verið að velta því fyrir sér að annar skammtur verði frá öðrum framleiðanda. Það hefur komið til álita og umræðu í löndunum í kringum okkur, til að mynda í Bretlandi. Við erum ekki enn komin að niðurstöðu með þau mál hér og teljum að við höfum enn ráðrúm til að gera það. En mér er kunnugt um að landlæknisembættið og sóttvarnalæknir eru að fjalla um þessa spurningu hv. þingmanns.