covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Hingað til hafa þingmenn notað myndlíkingar eins og ljósið við enda ganganna en nú er fólk farið að nota orðið endapunktur, samanber orð hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur. Þetta hefur auðvitað verið erfiður tími og við hlökkum til frelsisins en það skiptir líka máli að við sýnum æðruleysi og skrúfum ekki væntingar upp úr öllu valdi og þar bera stjórnvöld mikla ábyrgð.
Nýlega kynnti ríkisstjórnin eins og ekkert væri augljósara að aflétta ætti öllum takmörkunum innan lands 1. júlí, þvert á þá tilfinningu sem Þórólfur sóttvarnalæknir hefur. Við skulum aðeins skoða það mál betur. Vissulega mun almenningur anda léttar og horfa brosandi til sumarsins og það er ágætt að vekja upp væntingar og auka gleðina svona í kringum sumardaginn fyrsta. En fyrirtækin, einkum þau sem hafa verið í lamasessi, munu auðvitað líka taka það til sín. Þau fara að ræsa vélarnar og stilla gítarana og opna glugga og viðra rúmfötin og búa sig undir að taka á móti öllu fólkinu. En er þetta svona einfalt, hæstv. ráðherra? Eru þessar væntingar eitthvað sem ríkisstjórnin getur raunverulega staðið undir? Það eru að berast fréttir af auknum smitum í samfélaginu og veiran berst víða og er í auknum mæli farin að leggjast á unglinga og börn sem verða ekki bólusett í sumar samkvæmt áætlunum, þá ekki fyrr en seint.
Spurningin er því: Hversu ört áformar ríkisstjórnin að endurskoða áform sín þannig að ekki sé verið að vekja upp óhóflegar væntingar sem á endanum geta auðvitað kallað fram mikil vonbrigði en líka aukinn kostnað og fjárhagstjón hjá aðilum sem mega bara alls ekki við því núna?