151. löggjafarþing — 85. fundur,  26. apr. 2021.

covid-19, staðan og horfurnar fram undan, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:08]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Það sem hv. þingmaður snertir hér á er einmitt þessi línudans sem við erum í og höfum verið í núna á annað ár, þ.e. að freista þess að gefa eins mikinn fyrirsjáanleika og við getum en vera á sama tíma æðrulaus og raunsæ gagnvart þeirri staðreynd að sóttvarnalæknir metur stöðu faraldursins á hverjum tíma. Hann hefur gert það allan tímann og hann mun gera það á meðan við stöndum í þessari glímu. Allar dagsetningar geta breyst með hliðsjón af framgangi bólusetninga og þróun faraldursins, bæði innan lands og utan og ekki síst á landamærum. Þannig mun það verða.

Það er hins vegar alveg skýrt að þegar við erum komin með þá stöðu að fjórðungur þjóðarinnar hefur a.m.k. fengið fyrri sprautu og í byrjun maí verða það orðin 35%, síðari hluta maí verður það helmingur þjóðarinnar og síðari hluta júní verða það orðin 75% þjóðarinnar sem hafa a.m.k. fengið fyrri sprautu, þá hefur það auðvitað áhrif á áform okkar að öðru leyti, gangi þessi bólusetningarplön eftir. Það er mitt mat að það sé ábyrgt og mikilvægt að stjórnvöld sýni á þessi spil, þó auðvitað með öllum þeim fyrirvörum sem ég hef talið upp hér. Ég held að samfélagið sé algerlega orðið sjóað í því að taka því sem við erum að velta fyrir okkur í framtíðinni með þeim fyrirvörum. Við erum orðin sjóuð í því að búa við það að faraldurinn geti dúkkað upp með stuttum fyrirvara. (Forseti hringir.) Sannarlega eru núna blikur á lofti þar um en það er samt sem áður mín sannfæring að það sé betra en ekki (Forseti hringir.) að tala um þetta samspil bólusetninga og sóttvarnaaðgerða innan lands.